Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 33

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 33
flekanum og spyrni mér frá honum. Það er erfitt að synda, þegar maður finnur ekki til handanna, en ég busla af öllum mætti. Eg verð að ná til bjargbátsins. Einhvern veginn tekst mér að kom- ast þangað, og ég gríp í borðstokk- inn. Lítil telpa, varla tíu ára gömul, hangir einnig á bátnum. Eg reyni að klífa yfir borðstokkinn, en hann er of hár fyrir mig. „Litla stúlka,“ hvísla ég hásri röddu, „viltu reyna að færa þig of- urlítið, svo ég komist að borðstokkn- um, þar sem hann er lægri? Svo skal ég hjálpa þér, þegar ég er sjálfur kominn upp í bátinn. Henni tekst að færa sig ofurlítið til, enda þótt báturinn hendist til og frá á æstum öldunum. Og ein- hvern veginn kemst ég inn yfir borð- stokkinn og get með erfiðismunum dregið litlu stúlkuna upp í bátinn. Hún sezt niður, horfir á mig og spyr: „Hvar er mamma? Veizt þú, hvar mamma er?“ Tíminn dragnast áfram. Úrið mitt gengur ennþá. Það stendur á 11 — klukkustund er liðin síðan „Wil- helm Gustloff“ sökk. Það er jafn- hvasst og nístandi kalt og áður, og ég velti því fyrir mér, hvort það séu nokkrar líkur til þess að við náum nokkum tíma landi. Okkur rekur stefnulaust undan vindinum. Ég ef- ast um að nokkrar árar séu í bátn- um. Fólkið hreyfir sig ekki. Það situr þögult og sem stirnað í sömu stell- ingum og þegar ég kom í bátinn. Það líður fast að miðnætti. Langt úti í sortanum sé ég skyndilega glitta í ljós — það nálgast óðfluga. Er þetta kannske annar óvinakafbátur? En brátt get ég greint útlínur skips- ins. Það er þýzkur tundurspillir. Tundurspillirinn er kominn til okkar. Enginn rekur upp fagnaðar- óp. Björguninni er tekið með sama fálætinu og sinnuleysinu og markað hefur þetta litla samfélag undan- famar hryllingarstundir. Maður rís upp í bátnum og gríp- ur í kaðalstigann, sem rennt er niður með skipshliðinni til okkar. Hann stígur eitt skref upp, en er of stirður og máttfarinn til þess að komast lengra. Hann riðar við, hrasar og fellur aftur yfir sig niður í sjóinn, án þess að við fáum ráðrúm til þess að ná til hans. Hann steinsekkur — og kemur ekki upp aftur. Hinu fólkinu gengur betur. Fleiri bjargbáta ber að tundurspillinum. Nokkrir af áhöfninni fara niður í bátana til þess að hjálpa hinum særðu um borð í skipið. Nú eru allir úr mínum bát komn- ir heilu og höldnu um borð, og ég legg af stað upp stigann. Skyndilega tekur skipið hart viðbragð, svo ég verð að beita ýtrustu kröftum til þess að falla ekki úr stiganum. Tundurspillirinn snýr snöggt á bak- borða og setur á fulla ferð áfram — eitthvað út í nóttina. Há örvæntingaróp berast mér til eyrna, er við þjótum frá bátnum, sem enn eru hálffullir af fólki. Nokkrir af áhöfn tundurspillisins hafa einnig orðið eftir. Svo yfirgnæfir nýtt hljóð allt ann- að — drynjandi sprengjuhljóð! Við förum í krákustígum. Ég er dreginn um borð, rétt í tæka tíð. áður en ég gefst upp við að halda mér í kaðalstigann. Tundurspilla- deild hafði sézt á hraðri ferð í áttina til okkar, segir einn af sjóliðunum mér — það var ekki hægt að bíða eftir henni. Atti nú kannske annað skip eftir að sökkva undir mér? Það væri helzt til mikið á einni nóttu! Við getum ekki skipt okkur frek- ar af fólkinu, sem varð eftir í bjarg- bátunum. Mér er vísað inn í baðhús tund- urspillisins. Þar er hlýtt og bjart. Hressandi sápuilmur berst að vit- um mér. Þarna er þegar fyrir margt af skipbrotsmönnunum. Andlit þeirra og hendur eru bláar af frostbólgu, sumir eru skrámaðir og marðir, og yfirleitt eru allir held- ur hrollvekjandi útlits. Tundurskeyti þjóta fram hjá skip- inu í lítilli fjarlægð. Svo við eigum líka í höggi við kafbát — eða kaf- báta! Ég fer ekki úr fötunum, þótt þau séu rennvot. Finnst ekki taka því, þar sem ég býst eins við því að lenda í sjónum aftur innan skamms. Ég er enn dofinn af kulda og skelf frá hvirfli til ilja — en ég er þó lif- andi. Nú er ég ekki lengur í vafa rnn það. Það líður að dögun. Stálgrá, kuldaleg skíma sézt yzt úti við sjón- deildarhringinn í austri, — fyrst að- eins örmjó rák, sem smátt og smátt teygir sig lengra upp á himininn. Ég hitti skipslækninn, og við töl- um saman. Hann segir mér, að ein konan úr hópnum, sem bjargað var, hafi verið að fæða stúlkubarn. Hann segir, að móðirinni líði furðanlega vel. Ég spurði lækninn, hvort hann vissi tölu þeirra, sem bjargað hefði verið. Hann hafði ekki getað komið neinni nákvæmri tölu á fólkið, en taldi það vera milli 300 og 500. „Ég tel víst, að önnur skip bjargi þeim, sem eftir urðu“, sagði hann. Ég ráfa áfram um skipið, og ég verð var við það, að fregnin um barnsburðinn hefur borizt út á með- al fólksins. Það brosir, og svipur þess lifnar við — slíkur er máttur lífsins. Sólin siglir hægt og hátignarlega upp á himinhvolfið. 31. dagur janú- armánaðar er að hefjast. Það er á sjöunda ári styrjaldarinnar. Við nálgumst land óðfluga og sigl- um nú áfram á fullri ferð. Um miðjan morgun göngum við af skipsfjöl. Við erum komin til smá- bæjarins Sassnitz á eyjunni Rugen. Við göngum inn í bæinn eftir snævi þöktum og sleipum götunum. Fólk horfir forvitnislega á okkur út um hélaða glugga — eins og það mundi horfa á líkfylgd, dettur mér ósjálf- rátt í hug. Ég held mig mest niðri við höfn- ina — ætla að bíða eftir hinum skip- brotsmönnunum. En það koma engin skip að landi. Tíminn dragnast áfram. Ég geng aftur upp í bæinn, kaupi mér súkku- laði og sendi símskeyti til móður minnar í Darmstadt. Það er komið fram á kvöld, en engin skip hafa komið að landi með eftirlifandi farþega af „Wilhelm Gustloff". Loks koma þessar upplýs- ingar frá flotaskrifstofunni: Ef til vill 300 manns, eða í mesta lagi um 400 hafa verið fluttir til Kolberg eða aftur til Gotenhafen. Hér í Sassnizt voru taldir 400— 500 manns, svo að samanlagt hafði þá verið bjargað um 800 af þeim 8000, sem lögðu af stað frá Goten- hafen, með „Wilhelm Gustloff“ í gærkvöldi. Ég gat ekki trúað þessu. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.