Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 36
Glöð og falleg æskumær nýtur lífsins í náttúrufegurðinni.
líkamshreyfingar heldur en kynsyst-
ur þeirra á Tahiti og jafnvel yfir-
stíga hinar heimsfrægu vahinesí Pap-
eete, að líkamsfegurð og yndisþokka.
Sakleysi konunnar.
Á Samoa-eyjum er það ekki tal
in umtalsverð dyggð, að konur séu
einhæfar gegn karlmönnum. I raun-
veruleikanum er það þannig, að því
fleiri ástaræfintýri, sem konan hefir
átt, þess hæfari er hún talin til hjú-
skapar, og að því er virðist vegna
þeirrar trúar, að mikið dáð og falleg
stúlka, sem hafi mikla ástamála-
reynzlu að baki sér, hljóti að hafa
háþroskaða kynferðisþekkingu til að
bera. Frjálst kynferðissamband er
leyft óhindrað meðal æskufólks, og
í máli þeirra er orðið moetololo
mjög algengt, sem þýðir næturferða-
ásta-leikja-söfnun. Sem nánar tiltek-
ið liggur í því, að áhugasamur elsk-
ari læðist inn í kofa fale þar sem
ung stúlka býr, ef hún hefir gefið
honum undir fótinn, til þess að vera
með henni í næturmyrkrinu, meðan
fjölskylda hennar sefur vært á svefn-
mottum sínum allt í kring. Engin
Samoastúlka hikar við það eitt
augnablik, að skýra vinum sínum
eða eiginmanni frá því, hvað hún
hafi átt marga elskara. Það er til
spaugileg, sönn saga um Samoa-
stúlku, sem var að sækja um starf
hjá opinberri stofnun og átti í því
sambandi að fylla út eyðublað með
ýmsum upplýsingum. Þegar hún
kom að dálki þar sem spurt var um
kynferði, þar sem hún átti einfald-
lega að svara, karl eða kona, velti
hún spurningunni fyrir sér um stund,
og komst að þeirri niðurstöðu að
átt væri við „kynferðislega reynzlu“
og skrifaði: „Já, mörgum sinnum úti
á Mulinuu höfða“.
Ein megin ástæðan fyrir velsæld
fólksins og efnahagslegu öryggi, er
talin samhjálp þeirra hvern við ann-
an, margar fjölskyldur búa saman
í störum löngum fal'es kofum, og þús-
undir manna hópast þannig saman
í stærri þorpum, en yfir öllum hópn-
um er einn höfðingi, sem stjómar af
víðsýni og velvild. Þó að stjórnmála-
legt frjálsræði fólksins sé raunveru-
lega takmarkað, við vilja og skoð-
un 5 til 6,000 höfðingja og sjálfkjör-
inna ættarforsjármanna — stjórn-
málaflokkar þekkjast ekki á Samoa-
eyjum — þá er matais, sem í sínum
hópi er lögsagnarmaður, valdir til
þess að vera fulltrúar fólksins og
fara með umboð og atkvæði hver
fyrir sinn hóp.
Tupua Tamasese, hinn 55 ára
gamli, góðviljaði og stjórnmálaslyngi
þjóðarleiðtogi, yfir tvo metra á hæð
á sokkaleistum og 150 kíló að þyngd,
er arftaki æðstu tignartitla á eyjun-
um og heldur mjög á loft ágæti mat-
ai-stjórnarkerfisins fyrir Samoa-
þjóðina.
Matai-stjórnarkerfið
hefir þróast og blómgast á Samoa-
eyjum í meira en þúsund ár. Það er
jafn eðlilegt fyrir hinn almenna
Samoa borgara, að snúa sér til síns
matai með öll meiriháttar vandamál
lífsins, eins og fyrir evrópumanninn
eða ameríkumanninn að leita sér
upplýsinga í blöðum og útvarpi um
það helsta sem skeður í umheim-
inum.
Það er því ekki að furða, þó að
Samoa-fólkið hafi ekki viljað kasta
fyrir róða slíku stjórnarfyrirkomu-
lagi, þrátt fyrir sjálfstæðið, sem svo
vel hefir reynst þeim um þúsund ára
tímabil.
í Samoa-fjölskyldu þekkist ekki,
að neinn sé starfslaus. Hver ein-
staklingur hefir sitt verkefni. Jafn-
vel börn, gamalmenni og sjúklingar
leggja sitt til. Af þeim ásitæðum
þekkist ekki barnaheimili, sjúkra-
hús eða elliheimili á Samoa-eyjum.
Og í Samoamálinu þekkist ekki orð-
ið „foreldralaus". Hið opinbera legg-
ur heldur ekki á neina skatta til at-
vinnuleysistrygginga, þar sem at-
vinnuleysi er óþekkt fyrirbæri á
Samoa-eyjum.
En Samoa-eyjarnar hafa ekki
ávallt verið hin friðsæla Paradís.
Fyrr á tímum börðust einstakir höfð-
ingjar um völdin, og bardagar voru
aðalatvinna ungra manna í þorpun-
um. Og erlend öfl hafa löngum blás-
ið að slíkum eldi. Þýzkaland, Eng-
land og Bandaríkin sátu lengi um
að ná yfirráðum yfir þessum eyjum.
Árið 1889 sendi USA herskipin
Trenton, Vandalia og Nipsic þangað
í landvinningaskyni, en mættu þar
þýzku herskipunum Olgu, Adler og
Eber og brezka tundurspillinum
Calliope. Öll þessi herskip voru með
um 1,500 manna áhöfn.
Snemma að kvöldi
föstudagsins 15. marz 1889 hafði
42 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ