Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 37

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 37
18 skólaskip með um 1100 unglinga frá 8 löndum tóku þátt í kappsiglingu í júlí í sumar frá suðurströnd Noregs til Ostende í Belgíu. Ólafur Noregskonungur var við- staddur um borð í konungsskipinu „Norge‘0, þegar siglingin hófst. Myndin sýnir nokkur skipanna í Oslóarhöfn. loftvogin byrjað að falla ört, svo að yfirmenn þessara skipa áttu að geta gert sér ljóst, að hyggilegra væri að draga sig út úr hinni óvörðu höfn, í opinn sjó til þess að mæta væntan- legu ofviðri. En umhverfið var hlað- ið taugaspenningi. Hver minnsta óvænt hreyfing gat valdið stórskota- hríð milli keppinautanna, og þó til- kynningar hefðu borist um, að fár- viðri væri að nálgast Upolu, var spennan svo hörð í þessari togstreitu, að enginn vildi létta akkerum til þess að koma sér út úr skerjaklas- anum á rúmsjó. Afleiðingin varð sú að aðeins eitt af þessum skipum, komst af úr hild- arleiknum, enska herskipið Calli- ope, sem vegna sjómennsku hæfi- leika skipstjóra og skipshafnar, tókst að komast framhjá brotnandi skip- um, gegnum margfaldan skerjaklasa út á rúmsjó. Hin skipin fengu á sig brotsjói og fylltust af sjó og sukku eða rak á land og brotnuðu í spón, 145 sjómenn fórust í þessu veðri. Beinagrindina af þýzka herskipinu Adler, má enn sjá á kóralrifi í Apia, þar sem það brotnaði í tvennt. Þjóðverjum tókst loks að ná yfir- ráðum á vestur Samoa frá árinu 1900 til 29. ágúst 1914, en þann dag setti nýsjálenzkur leiðangur herlið á land og án þess að einu einasta skoti væri hleypt af, var Union Jack dreginn að hún. Stjórn Nýja-Sjá- lands á eyjunum í umboði Bretlands stóð til loka síðari heimstyrjaldar, en þá kröfðust SÞ umboðsstjómar í Samoa eins og öðrum Kyrrahafseyj- um, og fóru Nýsjálendingar með um- boð þar á þeirra vegum. Hinn takmarkaði útflutningur landbúnaðarafurða, sem eyjaskeggj- ar byggja gjaldeyristekjur sínar á, hefir að undanfömu orðið fyrir tals- verðu verðfalli, einkum á kakaó, kopra og bananamörkuðum. En Eyj- arskeggjar lifa ekki neinu luxuslífi, lifnaðarhættir eru mjög einfaldir og matvælaframleiðsla er langt fram yfir eigin þarfir, svo auðvelt er að draga úr gjaldeyrisfrekum innflutn- ingi. Mata ’Afa er bjartsýnn á framtíðina fyrir Samoaeyjar og segir: Okkur Samoabúum heppnast allt sem við tökum okkur fyrir hend- ur, því við lifum í guðsótta og góð- um siðum. Sem svar um álit hans á nýlendu- stjórn Nýsjálendinga sagði höfðing- inn hreint út: — Sagan sannar að hinn stutta yfirráðatíma Þýzkalands yfir Samoaeyjum átti sér stað mikil uppbygging, en Nýja Sjáland gerði ekki annað í 40 ár, en að bíða eftir þróuninni. Nýja Sjáland hefir sjálft haft við svo mikla efnahagslega örðugleika að stríða í eigin landi, einkum vegna minnkandi útflutningsframleiðslu, að það hefir ekki getað séð af fjár- hagsstuðningi til umboðsstjórnar- landanna Samaoa og Cook-eyjanna. Eitt af þeim atriðum í framtíðar- stjórn Samoa, sem Tamasese og for- sætisráðherra hans Malietoa eru sammála um, er það, að gera ekki eyjarnar að hvíldarheimili fyrir ferðamenn. Þeir hafa báðir séð hvernig það hefir reynzt á Hawai og Tahiti, þeir innfæddu eru að verða í minnihluta. Við viljum gjarnan lofa ferðamönnum að koma til þess að sjá fegurð eyjanna og fólkið, en við viljum ekki koma hér upp nein- um peningasjúgandi stofnunum. Það er því allt útlit fyrir, að Samoa-eyjarnar verði áfram ein síð- asta Paradís á jörðinni. (Úr: Sjömannen). SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.