Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Side 52
Sigurvegarar í reiptogi á Sjómannadaginn á Húsavík, talið frá vinstri, fremri röð:
Sigurður Héðinsson, Pétur Bjamason, Hörður Þórhallsson og Pétur Stefánsson. —
Aftari röð: Birgir Lúðvíksson, Guðbjartur Þormóðsson, Olafur Bjarnason, formaður
Sjómannadagsráðs, Skúli Jónsson og Kristinn Lúðvíksson.
Sj ómannadagurinn
á Húsavík
Hér mun ekki hafa verið sam-
komuhöld á Sjómannadaginn fyrr en
1941, en frá þeim tíma alltaf haldið
upp ádaginn. Sjómannadagsráð skip-
ar, fiskideildin „Garðar,“ til 1951, en
frá því Samvinnufélag útvegs og
sjómanna.
I ráðinu eru oftast sjómenn og
skipt um þá að mestu árlega, og því
ekki um neina sérstaka frammá-
menn að ræða.
Hátíðahöldin hafa verið með líku
móti frá því fyrsta. Seinnipart laug-
ardags fer venjulega fram kappróð-
ur, stakkastund og svo hefir verið
Guðmundur Karlsson,
sigurvegari í stakkastundi á Sjómanna-
daginn 1961 á Húsavík.
settur á flot gúmmíbjörgunarbátur
og sýnt hvernig þeir væru notaðir.
A Sjómannadaginn fyrir hádegi hafa
stærstu bátarnir siglt um með fólk,
eftir hádegi er svo hlýtt messu, en
úr kaffi er svo farið á íþróttavöllinn,
þar sem fram fer keppni í svo sem
knattspymu reiptogi naglaboðhlaupi
eggjahlaupi og mörgu öðru. Um
kvöldið er inni samkoma með góðum
skemmtiatriðum, og að síðustu er
stiginn dans. Um hátíðahöld Sjó-
mannadagsins er það að segja, að
þau hafa alltaf farið fram með mestu
prýði, og þeim sem að hafa staðið
til sóma. Heiðursmerki dagsins hafa
engum verið veitt. Agóða dagsins
hefur verið varið til ýmiskonar góð-
gerðarstarfsemi.
Svo sendi ég deginum heilla óskir.
Helgi Kristjánsson.
Sigurvegarar í kappróðri á Húsavík 1961, frá vinstri: Sigtryggur Kristjánsson, ívar
Júlíusson, Olafur Aðalsteinsson, Kristinn Lúðvíksson og Sigurbjörn Kristjánsson.
58 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ