Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 58
Aldraðir sjómenn, er heiðraðir hafa verið á Sjómanndaginn, talið frá vinstri: Magnús
Kristjánsson, Guðjón Jónsson, Jens Þórðarson, Jón Leví Jónsson, Hjálmar Þorsteinsson.
því, að nafna þeirra væri ekki getið.
Aldraðir sjómenn voru fyrst heiðr-
aðir á Sjómannadaginn 13. júní
1954, en alls hafa 11 gamlir bolvískir
sjómenn hlotið heiðurspening Sjó-
mannadagsins. Þeir eru: Þorlákur
Ingimundarson, Jens Jónsson, Guð-
mundur Salomon Jónasson, Halldór
Jónasson, Magnús Kristjánsson,
Finnbogi Bernódusson, Benedikt
Benediktsson, Jens Þórðarson,
Hjálmar Þorsteinsson, Jón Leví
Jónsson og Guðjón Jónsson.
Allir hafa þessir menn átt langan
og söguríkan sjómannsferil að baki.
Margir hinna eldri sjómanna og
forvígismanna Sjómannadagsins eru
fallnir í valinn. Einn þeirra er Óskar
Halldórsson, er var annar hvatamað-
urinn að stofnun Sjómannadagsins.
Óskar lifði aðeins tvo Sjómannadaga.
Hinn 30. janúar 1941 fórst hann með
mb. Baldri frá Bolungarvík. Varð
þar mikill mannskaði og stórt skarð
höggvið í hóp bolvískra sjómanna.
Á bátnum voru auk Óskars, Guð-
mundur Pétursson, skipstjóri, Ólafur
Pétursson, vélstjóri (bróðir Guðm.
og mágur Óskars) og Runólfur
Hjálmarsson (mágur Ólafs). Allt
voru þetta ungir menn, afburða sjó-
menn og aflamenn.
Ári síðar lézt Bjarni H. Jónsson,
mikill efnismaður, en hann hafði ver-
ið ritari Sjómannadagsnefndar frá
upphafi til dauðadags. Bera bækur
Sjómannadagsins frá þeim tíma fag-
urt vitni um framúrskarandi hand-
bragð hans og vandvirkni, svo að til
mikillar fyrirmyndar er. — Skráði
hann mjög nákvæmlega allt er fram
fór á Sjómannadaginn af stakri prýði
og vandvirkni.
Geta má þess, að aðstandendur
þeirra, er fórust með mb. Baldri,
reistu þeim fallegan minnisvarða í
kirkjugarðinum hér, og var hann af-
hjúpaður á Sjómannadaginn 1942.
Hér hefur verið rakin í stórum
dráttum saga Sjómannadagsins í
Bolungarvík, og nokkrir menn nafn-
greindir, sem komið hafa þar við
sögu. Að sjálfsögðu eru þó flestir
ótaldir, sem átt hafa þátt í því, að
gera Sjómannadaginn í Bolungarvík
að einum vinsælasta hátíðisdegi árs-
ins, — því að raunar hafa allir bol-
vískir sjómenn, fyrr og síðar, hjálp-
azt til að gera þennan dag að há-
tíðisdegi.
S j ómannadagurinn
á Súgandafirði
Fyrir réttum tuttugu árum tóku
súgfirzkir sjómenn að halda Sjó-
mannadaginn hátíðlegan. Fyrstu há-
tíðahöldin fóru fram fyrsta sunnu-
dag júnímánaðar 1942. Síðan hefur
hver Sjómannadagur verið hátíðleg-
ur haldinn við mjög almenna þátt-
töku Súgfirðinga, enda á meginþorri
þeirra alla sína afkomu undir sjáv-
arafla.
Því miður er ekkert til skráð um
Sjómannadaginn hér á þessum tveim
áratugum, og því margt farið að
fyrnast. Á fyrstu árum dagsins var
félagsmálum sjómanna þannig hátt-
að, að innan Verklýðsfélagsins Súg-
anda starfaði sérstök sjómannadeild
með þriggja manna stjórn. Kaus sú
deild sér sex menn til að starfa með
stjórn deildarinnar að undirbúningi
sjómannadags, og myndaðist þannig
níu manna sjómannaráð. En síðar
voru verkalýðsfélagið og sjómanna-
deildin sameinuð, og kýs nú Verka-
lýðsfélagið Súgandi tólf manna sjó-
mannadagsráð ár hvert.
Ekki verður með vissu sagt, hverj-
ir áttu sæti í hinu fyrsta sjómanna-
dagsráði, en eftirtaldir menn áttu
mikinn þátt í mótun þessa dags hin
fyrstu ár: Ólafur Friðbertsson, skip-
stjóri, Suðureyri; Trausti Friðberts-
son, nú kaupfélagsstjóri á Flateyri;
Ingólfur Jónsson, sjómaður, Suður-
eyri; Þorvaldur Kristjánsson,
Reykjavík; Kristján Guðmundsson,
skipstjóri, Suðureyri; Kjartan Ey-
þórsson, þá sjómaður á Suðureyri;
Jens Eyjólfsson, vélstjóri, nú bú-
settur í Hafnarfirði; Guðni Ólafsson,
nú bifreiðarstjóri á Suðureyri, og
Þórður Pétursson, vélstjóri, Suður-
eyri.
Snið hátíðahaldanna hefur verið
með nokkuð svipuðu móti frá ári til
árs. Hátíðahöldin hafa jafnan hafizt
með guðsþjónustu í Suðureyrar-
kirkju, og hafa sjómenn gengið þang-
að fylktu liði. Að lokinni guðsþjón-
ustu hafa farið fram hátíðahöld und-
ir beru lofti, ef veður hefur leyft. Er
þá venjulega fyrst flutt ræða um
sjómannastéttina og störf hennar. —
Síðan hafa farið fram margvísleg
skemmtiatriði. Hefur þar bæði verið
64 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ