Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 67

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 67
sjómenn, sjómennsku og siglingar, gerir hann það af svo mikilli þekk- ingu og snilld, að augljóst er að þar var hann öllum hnútum kunnugur. Það hefði mátt ætla að hann hefði stundað sjómennsku um langt skeið og öðlast mikla reynslu á sjónum. Hann þekkir sjóinn í hverskonar ham, sjávarkindur allar virðast hafa verið honum nákunnugar, öll hand- tök til lands og sjávar um sjó- mennsku og sjávar afla eru honum munntöm. Það vekur því nokkra furðu, er á daginn kemur að hann stundaði sjó- inn fremur lítið. En skýringin á hinni miklu þekkingu hans á hafinu og sæförum er auðsæ ,er maður veit að hann var alinn upp á sjávarbakk- anum og heyrði daglega fyrir sér orð- ræður um sæfarir og sjávarkindur. En minnið var trútt og athyglin vakandi, því að fróðleiksfýsni var mikil. A síðustu árum skrifaði Magnús eftir minni allmikið orða- safn, sem ekki var að finna í bók Sigfúsar Blöndals, og gætir þar mikið orða frá sjó. III. Árið 1924 kom út fyrsta ljóða- bók Magnúsar, Illgresi. Áður höfðu komið eftir hann nokkur kvæði í Eimreiðinni 1920. I þessum ljóðmælum var í raun- inni ekkert, sem til þess benti, að þar væri í úppsiglingu mikið skáld sæfara og siglinga. I Illgresi var að- eins á fáum stöðum vikið að því viðfangsefni. Kvæðið Skipbrot er eiginlega annars eðlis. I Veðurugg er aðeins í einni vísu minnst á hafið: Nú er olluvi djöflum dátt, dregur af mönnum gaman. Himinglæfa og austanátt ætla að dansa saman. En ein sæfaravísa er í Illgresi, sem Magnús nefndi Sigling. Hefur hún orðið vinsæl undir lagi Friðriks Bjarnasonar tónskálds: Hafið, bláa hafið hugann dregur. Hvað er bak við yztu sjónarrönd? Þangað liggur beinn og breiður vegitr. Bíða mín þar æskudrauma lönd. Beggja skauta byr bauðst mér aldrei fyrr. Bruna þtí nú, bátur minn. Svífðu seglum þöndum, svífðu burt frá ströndum. Fyrir stafni haf og himinninn. Og loks rekur lestina þessi vísa, sem sver sig í ættina: Þd að Ægir ýfi brá, ei skal vægja, undan slá auki blæinn kalda, eða lægja falda. I óprentuðum kveðskap Magnúsar er fátt af þessu tagi. Sæfarakvæði Magnúsar eru mjög fá, en þó drjúgur hluti af ljóðmæl- um hans, en víða í kvæðum dregur hann líkingar til hafsins. I kvæði hans um Bjarna Sæmundsson nátt- úrufræðing (Grindvíkingur) erþessi máttuga lýsing á hafróti: Enn er líkt og heróp hafsins himin bifi, skelfi lönd, þegar bylgjubreiðfylkingar bjartfaldaðar sækja að strönd —- björgin stynja, björgin hrynja, brimreyk leggur upp um fjöll eins og hvítir fuglar fljúga froðidagðar inn á völl. Magnús orti Rímur af Oddi sterka, árið 1932, en þær voru ekki prent- aðar fyrri en árið 1938. Er það al- mannarómur að þær séu kveðnar af snilld. Oddur sá, sem Magnús yrkir um, var í raun og veru aðeins hugar- burður hans, sem hann skapaði til þess að koma að ádeilum sínum á það, er honum þótti miður fara. Odd- ur af Skaganum var varla bæna- bókarfær. Að vísu segir prestur, þegar hann fermdi hann 15 7/12 ára, að hann lesi dável, en kunnátta hans í barnalærdómi og skrift sé lakleg, og hann sé óhæfur í reikn- ingi. Oddur var svo vanstilltur á geðsmunum, að hann var naumast umgengishæfur, enda enduðu vinnu- brög hans iðulega með brotthlaupi eða brottrekstri. Og hann var hart sú kempa, sem hann hélt sig vfera. Blaðaútgáfa og ritstjórn hans var þannig til komin, að gárungar í Reykjavík, skrifuðu blað hans Harð- jaxl, til þess að svala kersknis- og spottlöngun sinni. Seldi Oddur síð- an blöðin sér til framdráttar, en hann mun þó lengst af, hafa verið á framfæri Reykjavíkurbæjar. Jósef Húnfjörð orti Rímu af Oddi Sigurgeirssyni á undan Magnúsi, en það voru aðeins 18 vísur og aðallega um drykkju Odds og slagsmál. Þar er þessi vísa: Svo var það til sjós og lands sæist Oddur kenndur, voru beztu vopnin hans vöðvastæltar hendur. Vera má að þessar vísur Jósefs hafi orðið til þess, að ýta við Magn- úsi, en öðrum tökum tók hann yrkis- efnið, eins og vænta mátti. I fyrstu tveimur rímunum er sagt frá æsku Odds og sjómennsku. Þær vísur sýna hversu mikla þekkingu Magnús hafði til brunns að bera í þessum efnum og á þar margt aug- ljóslega við hann sjálfan. Ríman hefst svona: Fæddur í veri Oddur er, um þann knérunn vitni ber, er leihur sér um sund og sker, siglir knerri um bláan ver. Ungur gáði út á Svið, ungur dáði hafsinS nið, ungur þáði Ægi við afl og dáð og sjómanns snið. Lét ei hræða brim né byl, bjóst á græði fanga til. A keip og ræði kunni skil og kristin fræði hér um bil. Lærði að taka lag og mið, lenda, stjaka, halda við, skorða, baka, hitta hlið, hamla, skaka og andófið. — Hausa, fletja, slíta slóg, sleddu hvetja, ausa sjó, fast að setja, fíra kló, fella net og splæsa tó —- Grunnmál taka, leggja lóð, lúðu flaka, slægja kóð, seglum aka, beita bjóð, blóðga, kraka, róa í njóð. Lærði að þekkja bakka, brok, bólstra, mekki ,þoku, fok, brælu, strekking, rumbu, rok, reynslu fékk um tregðu og mok. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.