Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Side 74

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Side 74
Nokkrir leiðangursmanna við heimkomuna til Akureyrar. — Ljósm. Gísli Ólafsson. plöntur í fullum blóma, þótt þær væru aðeins að byrja að skjóta upp kollinum, er við komum þangað. Annars er eyjan harðla gróðursnauð eins og fyrr er sagt, enda er lofts- lag kalt, og jarðvegur nær enginn, en mest mun þó vatnsleysið baga þrátt fyrir allmikla úrkomu, því að allt regn hripar jafnóðum í sandinn og hraunin. Margt er nú orðið af refum, og minntu slóðir þeirra og traðk helzt á fjárslóðir í beitilandi á vetrardegi. Allmikið af fugli verpir í björgun- um, svartfugl, máfar og fýll, og býsna margt er þar ýmissa fugla, enn ann- ars er dýralífið snautt eins og gróð- urinn. Ferðalok. Dagarnir liðu. Alltaf hækkaði í lestinni í Oddi. Loks fylltist hún og þá var tekið að hlaða á þilfarið eins og það þoldi, en einnig það tók enda, og laugardagskveldið 22. júní var Oddur fullfermdur. Við sigldum þá í síðasta sinn inn til Norsku búða til að kveðja kunningja okkar, taka á móti bréfum, og þakka þeim fyrir góðar viðtökur og kynni. Eg held að sumir þeirra hafi hálföfundað okkur yfir að vera að fara heim, þótt ekki létu þeir það í ljós. Loks var akkerum létt kl. 5 á sunnudags- morgni. Dálítinn útúrdúr áttum við þó eftir. Daginn áður höfðum við séð eitthvert ókennanlegt rekald í sjónum alllangt undan landi. Var þá ýmsum getum að leitt, flestum fjarstæðum, svo sem að um kafbáts- turn væri að ræða eða því um líkt. En þetta barst nær og þótti okkur ófært að kveðja eyna svo, að við ekki gengjum úr skugga um, hvað þarna væri á ferðinni. Var tekinn dálítill krókur norður á við. Þetta reyndist vera bauja ein mikil, og var hún tekin í slef, ef verða mætti eitt- hvert gagn að gripnum. Var klukk- an því orðin 7 á sunnudagsmorgun- inn, þegar lagt var af stað frá eynni, og var nú siglt beint strik til Eyja- fjarðar. Veður var hið blíðasta, logn og léttskýjað, Menn höfðu samt lítið um sig. Var hvorttveggja, að flestir voru hvíldinni fegnir, og að skipið gaf ekki færi til mikilla þæginda eða skemmtigöngu á þilfari ofan á timb- urstokkunum. Ekkert bar til tíð- inda, nema að nú mættum við fjölda togara erlendra, sem voru að veið- um undan norðurströnd landsins. Til Akureyrar komum við kl. 8,30 á þriðjudagsmorgun í sólskini og hægri sunnangolu. Var okkur vel fagnað, og þótti sumum sem við vær- um úr helju heimtir. Ferðinni var lokið, og hafði hún gengið ákjósan- lega í hvívetna. Að endingu vil ég færa öllum sam- ferðamönnum mínum frá Oddi beztu þakkir fyrir samvistirnar. Á sprengikvöld 1962 Brezka flotastjórnin hefir pantað 300 Kelvin Hughes radartæki fyrir sjóherinn. 80 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.