Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Qupperneq 83
Efri myndin af skut skipsins, neðri af
rannsóknar og köfunarkúlu.
Þjóðverjar svipuð hafrannsóknaskip
í smíðum, og eru bæði skuttogarar.
Englendingar smíðuðu fyrir ári síð-
an nýtt hafrannsóknaskip með venju-
legum hliðartogsútbúnaði.
A sumri komandi eru 8 erlend haf-
rannsóknaskip væntanleg til Islands
í sambandi við rannnsóknir á áhrif-
um mismunandi möskvastærðar á
fiskistofnana. Fer þessi rannsókn
fram samkvæmt ákvörðun Alþjóð-
hafsrannsóknaráðsins, en undir um-
sjá Fiskideildar Atvinnudeildar Há-
skólans. Frakkar taka þátt í þessum
athugunum, og standa vonir til, að
þeir sendi hingað hið nýja skip sitt,
„THALASSA“.
Er þá aumt til þess að vita, að
fiskveiðiþjóðin, Islendingar sjálfir,
skuli ekkert hafrannsóknaskip eiga.
Með pensil og spjald til sjós
í fyrra vor skráði sænska listakonan Asti Hector sig í fyrsta sinn til sjós til
þjónustustarfa, til þess á þann hátt að fá tækifæri til að leita að nýjum og sérkenni-
legum „motivum“ í eðlilegu umhverfi. Hún fékk pláss á M. s. Amazonas frá John-
son-línunni. Eftir að hafa ferðast um og komið í land m. a. í Rio de Janeiro, Santos,
Motevideo og Buenes Aires, ásamt ferðalagi upp eftir La Plata-fljóti til Rosario, hafði
hún fundið svo mikið af fögrum og óvenjulegum „motivum“, að hún var ákveðin í
því, að fara aftur til sjós í vetur.
I það skifti hafði hún umsjón með íbúðum áhafnarinnar á m. s. Brasila í jóm-
frúrferð þess skips til Buenos Aires. En Asti Hector fann þá einnig svo margar sér-
kennilegar „typur“ og motiv meðal sænsku sjómannanna, að hún skisseraði og málaði
engu minna sænskt heldur en suður-amerískt. Strákunum um borð þótti gainan
að þessu nýja fyrirbæri, og voru ósparir á að standa „model“. A myndinni er Asti
Hector að teikna nokkra af skipshöfninni á „Brasilia“.
Hinir aldurhnignu sjómenn
hafa ávallt mætt vel til há-
tíðahalda Sjómannadagsins,
hvernig sem veðurfari eða
öðrum aðstæðum hefur ver-
ið háttað.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 89