Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Side 84
Sjómenn er lótið hafa lífið
1961 og 1962
1961.
13. maí drukknaði Valmundur Sverris-
son, 19 ára, Norðurgötu 15, Akur-
eyri, er hann var á handfæraveiðum
undan Kjalamestöngum.
3. júní drukknaði Hermann Magnússon
frá Akureyri, er hann féll fram af
togarabryggju á staðnum. Fannst lík
hans er höfnin var slædd. Lætur
eftir sig konu.
24. júlí drukknaði Helgi Magnússon frá
Bíldudal. Hann tók út af vb. Freyju,
sem var við dragnótaveiðar. Helgi
var formaður slysavarnadeildarinnar
á Bíldudal. Hann var ókvæntur, en
lætur eftir sig aldraða móður.
15. ágúst drukknaði Magnús Tryggva-
son, 17 ára, Hringbraut 116, Reykja-
vík. Var hann að stökkva út af nóta-
báti af skipinu Freyju GK 10, en féll
við það milli skips og báts. Björgun-
artilraunir báru engan árangur.
15. September fórust eftirtaldir 7 menn
á Færeyjabanka með Helga SF 50
frá Höfn í Hornafirði:
Bjami Runólfsson, Sogavegi 116.
Reykjavík, kvæntur og átti 4 böm.
Björn Jóhannsson, Brunnum, Suð-
ursveit, ókvæntur, átti aldraða for-
eldra.
Bragi Gunnarsson, Ilöfn í Horna-
firði, ókvæntur.
Einar Pálsson, Höfn í Hornafirði.
átti aldraða foreldra.
Friðþjófur Trausti Valdimarsson,
Birkihvammi 20, Kópavogi, ókv.
Olafur Runólfsson, Höfn í Horna-
firði, kvæntur og átti fjögur böm.
Olgeir Eyjólfsson, Höfn í Hornafirði,
kvæntur og átti þrjú börn.
25. september drukknuðu feðgamir
Símon Olsen, 63 ára, kvæntur og
lætur eftir sig fjögur börn, og Krist-
ján Olsen, 23 ára, kvæntur og lætur
eftir sig eitt barn. — Bátur þeirra,
Karmöy, frá Isafirði, fórst á ísa-
fjarðardjúpi.
23. september drukknaði í Reykjavík-
urhöfn Olgeir Sigtryggsson, sjómað-
ur, frá Raufarhöfn, 39 ára.
23. november drukknuðu bræðurmr
Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir, er
vb. Skíði fórst á Húnaflóa, báðir
ungir og láta eftir sig aldraðan föður.
1962.
31. janúar fórust þrír menn, er þá tók
út af vb. Særúnu frá Bolungarvík,
er skipið fékk á sig hnút. Þeir hétu;
Sigþór Guðnason, skipstjóri, Sæfelli,
Seltjarnarnesi, kvæntur og átti þrjú
börn.
Björgvin Guðmundsson, háseti,
Framnesvegi 23, Reykjavík, 28 ára,
vík, kvæntur, barnlaus.
Konráð Konráðsson, stýrim., Njáls-
götu 51, 39 ára, kvæntur, barnlaus.
10. febrúar fórust tveir menn af togar-
anum Elliða frá Siglufirði, er hann
fórst. Höfðu þeir komizt í gúmsní-
bát, sem rak frá skipinu og fannst
ekki fyrr en daginn eftir, og voru
þá mennirnir látnir. Þeir voru:
Egill Steingrímsson, 41 árs, lætur
eftir sig tvö börn.
Hólmar Frímannsson, 26 ára, lætur
eftir sig aldraða foreldra. Báðir frá
Siglufirði.
17. febrúar fórust 11 manns, er vélbát-
urinn Stuðlaberg frá Seyðisfirði
fórst í vondu veðri út af Reykja-
nesi. Þeir voru:
Jón Jörundsson, skipstjóri, Faxabr.
40 B, Keflavík, kvæntur, átti 4 börn.
Pétur Þorfinnsson, stýrim., Engihlíð
12, Reykjavík.
Kristján Jörundsson, 1. vélstj., bróð-
ir skipstjóra, Brekku, Ytri-Njarð-
vík, kvæntur, barnalaus.
Karl Jónsson, 2. vélstjóri, Heiðar-
vegi 6, Keflavík, kvæntur.
Birgir Guðmundsson, matsveinn,
Njálsgötu 22, Reykjavík.
Guðmundur Ólafsson, Stórholti 22,
Reykjavík, kbæntur, átti þrjú böm.
Gunnar Laxdal Hávarðsson, Kirkju-
vegi 46, Keflavík, 17 ára.
Örn Ólafsson, Langeyrarv. 9, Hafn-
arfirði, kvæntur, átti eitt barn.
Kristmundur Benjamínsson, Kirkju-
vegi 14, Keflavík, kvæntur, átti þrjú
börn.
Ingimundur Siginarsson, Seyðisfirði,
31 árs, ókvæntiu-.
Stefán Elíasson, Vesturg. 24, Hafn-
arfirði.
23. febrúar varð það slys á Skagaströnd
að maður liðlega fertugur, Hafsteinn
Björnsson Fossdal, féll í sjóinn og
drukknaði. Lét hann eftir sig konu
og fjögur börn.
3. maí fórust þrír menn, er trillubátur-
inn María kom ekki fram, en hann
var á leið milli Garðs og Keflavíkur
í slæmu veðri. Þeir voru:
Einar Þórarinsson, Njarðv., kvæntur
og átti þrjú börn.
Sævar Þórarinsson, Njarðvíkum, 23
ára, kvæntur og átti eitt barn.
Eggert Karvelsson, Njarðvíkur, 18
ára, ókvæntur.
90 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ