Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Síða 9

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Síða 9
Þorsteinn Gíslason, íiskimálastjóri: Hcilla- og hamingjuóskir til íslcnskra sjómanna í dag fagnar þjóðin sjómanna- deginum með öllum sjómönnum og sjávarútvegsfólki og hátíð er haldin um land allt. Sjómannadagurinn er samein- ingartákn íslenskra sjómanna og við sem munum tilkomu hans fyrir 45 árum hugsum með virð- ingu og þökk til brautryðjend- anna. Þeir settu merkið hátt og hafa borið það með reisn. Af sjómannadagsráði hefur verið unnið kraftaverk. Dvalar- heimili aldraðra sjómanna, Hrafnista í Reykjavík og Hafnar- firði, vitna þar um, og ekki ber síður að þakka að tekist hefur að glæða skilning alþjóðar á fram- tíðarverkefninu, sem byggist á kjörorðinu „að glæða ellina lífi“. Þorsteinn Gíslason Hátíðahöld dagsins í hinum mörgu útgerðarstöðum verða ef- laust mörgum þátttakendum minnisstæð. Þau eru einskonar uppskeruhátíð að lokinni vetrar- vertíð. Alvara og gleði skiptast á, unninna afreka og fallinna er minnst. Menn gleðjast í leik og keppni. Ræður eru fluttar og þá stundum lúðrar þeyttir, sem hljóðna oft fljótt að loknum degi. í eyrum sjómanna hljóma þessir tónar falskir. Þeirra óskir á þess- um alvöru- og gleðidegi eru að treysta bönd vináttu ogskilnings við aðrar stéttir landsins. Eflaust fjallar margur ræðu- maðurinn í dag um, hve áþreifan- lega við vorurn rninnt á legu landsins okkar á nýliðinni vertíð og að náttúruauðlindir hafa tak- mörk. Þótt nú hafi syrt hastarlega í ál- inn vitum við ósköp vel að okkur er jafn nauðsynlegt að sigla og fyrr, því við viljum halda áfram að lifa í landinu okkar. Eins og „brælumar, sem gleymast fljótt“, þá gleymum við e.t.v. of mörgu í góðæri seinustu ára. Þeim, sem lengi verður að dvelja fjarvistum, getur sjó- mennskan orðið á vissan hátt fóm. Við íslandsstrendur hefur hún orðið mörgu ungmenni harður en hollur skóli og gefið gott veganesti til starfa við hinar ýmsu atvinnu- greinar, eins og hvert það starf gerir, sem unnið er af trúmennsku og einlægni. Áður réði giftu oft meir afl og áræði. Margskonar tækni hefur haldið innreið og breytt starfs- háttum. Tæknin hefur vissulega aukið afköst og á margan hátt létt störfin. Rafeindatæknin hefur gjörbreytt starfsskilyrðum og við- brögðum skipstjórnarmanna. Hún hefur auðveldað þeim störf- in. En þrátt fyrir þessa miklu þró- un stjórntækja og öryggisbúnaðar skipa verða allt of mörg óhöpp. Mannlegi þátturinn gleymist oft, því tækin verða aldrei annað en til aðstoðar þeim sem nýtur þeirra. í dag er þakklæti ofarlega í huga til brautryðjenda sjómanna- dagsins og sjómannadagsráða. Þeir stigu heillaspor og þótt gatan grói og fennt hafi í spor þeirra margra, þá stendur varðinn, óbrotgjarn. Við minnumst þeirra sem fallið hafa á sjónum með hljóðri þökk. Ég bið almættið að gefa öllum sjómönnum styrk þess, sem trúir og biður, svo þeir öðlist það afl að skynja, að guð hjálpar þeim, er hjálpar sér sjálfur. íslenskir sjómenn! Til hamingju með daginn. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.