Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 35
ágrafinn og Sendibílastöðin hefur
unnið hann í 6 ár í röð var ákveðið
að færa stöðinni bikarinn að gjöf,
enda gaf stöðin nýjan farandbikar
til keppni fyrir landsveitir karla.
Keppt var í stakkasundi og voru
keppendur 6 að tölu. Sigurvegari
var Jón B. Sigurðsson annað árið í
röð, en auk hans kepptu bræður
hans tveir og þrír aðrir vaskir
menn.
Þá fór fram koddaslagur við
mikla kátínu viðstaddra.
Merki dagsins og Sjómanna-
dagsblaðið var selt í Nauthólsvík,
svo og um allt land. Dagskrá Rík-
isútvarpsins var að hluta tileinkuð
sjómönnum undir stjóm Guð-
mundar Hallvarðssonar.
Sjómannadagurinn i Reykjavík
færir skipulagsnefnd dagsins og
öllum þeim fjölmörgu er veittu
deginum lið og styrktu hann á
annan hátt. bestu þakkir fyrir
veittan stuðning.
Ný kynslód seglskipa
Frá því hefur verið greint, meðal annars í íslenskum blöðum, að meðal leiða til þess að
lækka olíureikninga skipa, sé að reyna að hagnýta vindorkuna, sem er „ókeypis“, eins og
það er stundum orðað.
Eitt frægasta skipið sem notar hjálparsegl er japanskt olíuskip, sem siglir milli Kína og
Japans með olíuvörur. Þar hefur náðst frábær árangur, og meiri en menn gerðu ráð fyrir.
Seglin skila sínu, en auk þess nýtist vélarorkan betur, því skipið veltur minna en önnur
skip af sömu stærð, þ.e.a. segja undir seglum.
Japanir liafa haft forystu í að nýta vindorku fyrir skip, en nokkrir örðugleikar eru því
samfara, þar eð seglskipin hafa stóra skipshöfn og aðeins sjálfvirkur seglahúnaður er
arðbær. Áður kunnur seglabúnaður er því ekki hagkvæmur.
Nú hefur ný seglagerð komið á markaðinn fyrir vélskip, eða hjálparsegl. Breska
fyrirtækið Prudental Group hefur ákveðið að verja 125.000 sterlingspundum til þess að
láta gera tilraun með svonefnd John Walker-segl, sem hafa vakið mikla athygli. Seglin
eru hönnuð fyrir hydrofoilbát, er hann lét smíða og ber nafnið FLYER. Flyer er aðeins 7.5
metra langur. Þessi seglabúnaður er nýstárlegur og þykir henta kaupskipum. Standa nú
yfir tilraunir með þessi nýju segl og á myndinni getur að líta olíuskip frá F. T Evans, en
útgerðin hyggst taka nýju seglin í notkun á samskonar skip. (Myndin er af modeli.) Er
talið að þessi nýju segl muni valda byltingu í hjálparseglanotkun á heimshöfunum.
Hraðfrysting — Saltfiskverkun
Skreiðarverkun
Útgerð:
BV Bjarni Benediktsson RE210
BV. Ingólfur Arnarson RE 201
BV. Snorri Sturluson RE219
BV. Hjörleifur RE211
BV. Jón Baidvinsson RE 208
BV. Ottó N. Þorláksson RE 203
Bæjarútgerð
Reykjavíkur
Hafnarhúsinu vlð Tryggvagötu
Sími 24345 (5 línur)
Símnefni BÚR. — Telex: 2019.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 35