Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 81
Sjóslys og
drukknanir
— írá 6. júní 1982 til 20. apríl 1983
17. ágúst
Fórst v.b. Léttir SH 175,6
tonna eikarbátur frá Rifi
og með honum skipstjór-
inn Óli T. Magnússon, 41
árs, Réttarbakka 15,
Reykjavík. Fjölskyldu-
maður.
18. nóv
Lést Öm Knútur Söebech,
háseti, 42ja ára, Kvisthaga
19, Reykjavík, af völdum
áverka, er hann hlaut um
borð í skuttogaranum
Karlsefni RE 24 frá
Reykjavík, þegar skipið
var að veiðum vestur af
Látrabjargi. Skipið fékk á
sig brotsjó sem hásetinn
varð fyrir, þar sem hann
var við vinnu á þilfari.
23. des.
Strandaði og eyðilagðist
Stormsvalan, 16 tonna
seglskúta með hjálparvél,
frá Reykjavík á Löngu-
skerjum í Skerjafirði.
Skipstjórinn Gunnar
Guðjónsson, 61 árs Blika-
hólum 2, Reykjavík, fórst.
Fjölskyldumaður.
Biskupinn yfir íslandi. herra Pétur Sigurgeirsson vígir minningarkapellu hjúkrunardeildar Hrafnistu Hafnarfirði 20.
mars 1983.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 79