Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 18
Verið að draga línuna eftir beitingu á sjómannadaginn. Það Gömul mynd frá fiskmati í Bolungarvík. Líklega tekin 1930, eða
er Hávarður Olgeirsson, skipstjóri á Dagrúnu, sem dregur. þar umbil. Matið hefur verið framkvæmt úti við Lækjarbrún.
ungarvík hátíðlegur haldinn, svo
sem fyrr segir.
Þessi fyrsti sjómannadagur Bol-
víkinga hófst með því, að sjómenn
gengu fylktu liði til Hólskirkju og
hlýddu á prédikun hjá sóknar-
prestinu, séra Páli Sigurðssyni.
Var síðan aftur gengið fylktu liði
frá krikju, en um kvöldið var
skemmtun í I.O.G.T.-húsinu.
Skemmtunina setti Finnbogi
Bernódusson og Karlakór Bol-
ungarvíkur söng undir stjórn séra
Páls Sigurðssonar, en síðan var
dans stiginn fram undir morgun.
Eitthvað á þessa leið má lýsa
upphafi sjómannadagsins á Bol-
ungarvílk. Og án efa hefur verið
staðið að þessum degi á svipað-
an hátt víða um land. Þó hygg ég,
að Bolvíkingar hafi þarna nokkra
sérstöðu, en hún er sú, að dagur-
inn er ekki í beinum tengslum við
sérstök félög er hér starfa, heldur
er sjómannadagurinn haldinn af
starfandi sjómönnum, sem héreru
á hverjum tíma. Þeir kjósa degin-
um stjórn, en t.d. stéttarfélögin
koma þar ekki við sögu.
Segja má að þetta sé einhvers-
konar lýðræði, en menn hafa þó
skyldur, en félagsgjöld greiða
menn ekki til sjómannadagsins.
— Hvernig hefur veturinn
gengið fyrir sjósókn og útgerð?
— Þetta hefur verið örðugur
vetur og langur. Og svo misstum
við lika dýrt skip, eins og alþjóð er
kunnugt, Hafrúnu sem strandaði
undir Stiga.
Þótt vitaskuld sé það aðalatrið-
ið, þegar svona atburðir gerast, að
ekki verði líftjón, eða slys á
mönnum, þá er þetta óneitanlega
áfall fyrir byggðarlagið. Hér
munar um góð skip, sem og á
öðrum stöðum.
Saga Bolungarvíkur
— Saga útgerðar í Bolungarvík
er orðin löng.
— Já hún er það. Þuríður
sundafyllir nam hér land, að því er
sögur herma og síðan hafa skip
líklega gengið héðan, meira og
minna. Þótt búskaparland sé all-
gott hér í dölunum, þá snýst
mannlífið hér um sjósókn, sem var
og er lífbjörgin. Segja má að
Magnús Kristjánsson og Einar Guðfinnsson. Magnús var lengi
fánaberi á sjómannadaginn, en liann var lengi formaður í Bolung-
aník. Hann var þekktur sjómaður og góður glímumaður. Einar
Guðfinnsson hefur sem kunnugt er verið einn merkasti útgerðar-
maður landsins um sína daga.
18 SJÓMANNADSGSBLAÐIÐ