Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 49
Flateyri við Önundarfjörð og
önnur útræði þar, ásamt hinum
grösugu dölum eiga sér mikla
skrifaða sögu, sem er að finna í
mörgum ritum og aragrúa greina.
Það er því fremur örðugt að velja
og hafna, þegar við segjum frá
Flateyri.
Tökum við þann kostinn að
stikla á stóru.
Svo hafði verið ráð fyrir gert, að
við hjá Sjómannadagsblaðinu fær-
um sérstaka ferð til Flateyrar á
útmánuðum. Þótt komið væri
framundir sumarmál, er við lögð-
um upp til Vestfjarða, var engin
leið að komast til Flateyrar. Og
þótt eigi sé Breiðadalsheiði langur
vegur, eða leiðin frá ísafirði til
Flateyrar, var ófærðin slík að eng-
um datt í hug að reyna að moka
veginn, og þar við bættist svo, að
snjóruðningsmaskína Önfirðinga
lá beinbrotin í einhverju gili,
þannig að líka var ófært frá Flug-
vellinum í Holti, inn í þorpið, og
flugvöllurinn sjálfsagt ófær líka.
Þetta segir ef til vill nokkuð um
aðstæður í Önundarfirði í vetrar-
ríki og að sjósókn í svörtu
skammdegi er örðug við ysta haf.
Flateyri
Ef vikið er að Flateyri sérstak-
lega, þá hefur þar risið mynd-
arlegt sjávarþorp. Margir rekja
uppgang staðarins til þess, að árið
1887 hófu Norðmenn byggingu
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 49