Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 53
Guðmundur Ingimarsson*.
Fí skiski pastól I i n n
1982
Að ósk ritstjómar Sjónianna-
dagsblaðsins verður hér gerð
nokkur grein fyrir fiskiskipastól
landsmanna, eins og hann var
skráður í Sjómannaalmanaki
Fiskifélags íslands, sem í desem-
ber s.l. kom út í 58. skipti á vegum
félagsins.
Áður en það er gert skal aðeins
litið á fyrsta Almanakið er Fiski-
félagið gaf út, íslenzkt Sjómanna-
almanak 1926. Þar var að finna
margskonar upplýsingar, lög og
reglugerðir er nauðsynlegar voru
öllum skipstjórnarmönnum.
Einnig þar var skrá yfir öll íslensk
þilskip, sem þá í fyrsta sinn var
samin í samvinnu við Skipaeftirlit
ríkisins. Áður höfðu skipaskrám-
ar verið samdar eftir upplýsingum
úr fiskveiðiskýrslum og gætti þar
oft misskilnings vegna rangra
upplýsinga við gerð skipaskrár-
innar og má t.d. geta þess að hinir
svokölluðu HELLYERS togarar 8
að tölu voru taldir með íslensku
skipunum, en þeir voru þá gerðir
út frá Hafnarfirði.
Það var af þessum sökum og
fleiri sem Fiskifélagi íslands var
árið 1925 falin útgáfa Sjómanna-
almanaksins, enda hafði gætt
mikillar óánægju með Almanakið
allt frá því það kom fyrst út árið
1914 á vegum Stjómarráðsins og í
samráði við foringjana á varð-
skipinu.
Álmanök frá þessum tíma eru
nú með öllu ófáanleg og mikið um
þau spurt, enda fjölmargir menn
um land allt að safna þessari bók.
Með útgáfu Sjómannaalmanaks-
ins 1926 voru í fyrsta sinn fengnar
„nokkuð öruggar“ heimildir um
stærð og gerð íslenska fiskiskipa-
stólsins, en þá var hann talinn 606
þilfarsskip um 23.582 brúttósmá-
lestir (opnir bátar ekki meðtaldir)
og skiptist hann þannig:
Br.smál.
1. Togarar (gufuskip) 35— 11.303
2. Línuveiðarar (gufuskip) 35— 3.719
3. Vélbátar yfir 30 brl. 71— 3.416
4. Vélbátar undir 30 brl. 445— 4.591
5. Seglskip 20— 553
Eins og búast mátti við var gerð
fyrstu skipaskrárinnar í mörgu
ábótavant og því þótti rétt að setja
eftirfarandi skýringu við skipa-
skrána
„Eins og skipaskráin sýnir, er
henni víða mjög ábótavant, um
upplýsingar, því allvíða kemur
fyrir í henni að það er lítið annað
en nafn skipsins sem upp er gefið,
en rjettast þótti samt að taka öll
þau skip, sem heimildaritin gátu
um; sjest þá best hverju er ábóta-
vant. Er þess fastlega vænst, að
allir sem hjer eiga hlut að máli
stuðli að því, að næsta skipaskrá
verði eins fullkomin og hún á að
vera, og verður sjerstaklega að
beina þessum orðum til sýslu-
manna og lögreglustjóra landsins,
sem, því miður, allflestir, eigi hafa
gert sjer nægilegt far um að hafa
skipaskráningu umdæmis síns í
góðu lagi.
Skímir GK 515 eign Haraldar Böðvarssonar Akranesi. Formaður Eyjólfur Jónsson,
gerður út frá Sandgerði á vertíð 1929 til 20 maí. Aftari 988 skp. af furustöðnum fiski, sem
þá var hinn mesti afli sem komið hefur á skip af þessari stærð. (Þ.e. 592.800 kg af
óslægðum fiski.)
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 53