Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Qupperneq 13

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Qupperneq 13
— hvort hér væri um Þjóðverja að ræða. Byrj- unin á þessu var nánast alveg eins og lýst hafði verið, þegar ráðist var bæði á Fróða og Reykjaborgina, skothríð utan úr myrkrinu. En við vorum svona ólýsanlega heppnari en þeir. Spennan var mikil um borð hjá okkur. eins og áður sagði, og auðvitað urðum við smeykir. Ég man t.d. að ég varð svo þurr í munninum að ég fór fram í eldhús og fékk mér kaffi. í sólarhring í austri og 14 daga bamingi heim En baslið í þessari ferð var ekki búið. Er nær dró Englandi kom leki að skipinu, sem ágerðist og var allmikill sjór kontinn í skipið er lensi- dælan bilaði skyndilega og ekki varð við hana gert. Um annað var ekki að ræða en allur mannskapurinn færi í austur. Skipstjórinn stóð við stýrið en í austri stóðu sex hásetar, vélstjór- arnir tveir, stýrimaðurinn og kokkurinn. Þessi hópur stóð við austurinn linnu- og hvíldarlaust í rúman sólarhring. Þetta var barátta upp á líf og dauða. En okkur tókst að komast inn til Stomaway á Hebridgeeyjum og fá þar dælu til að tæma skipið, svo halda mætti áfram til Fleetwood. Þegar þangað kom var fiskurinn í lestinni orðinn ansi slappur. I Fleetwood var dvalist viku eða tíu daga til að fá gert við lekann á skipinu. En loks var haldið heim á leið. Þá lentum við í óvenju vondum veðrum. Mikill norðvestan veðra- hamur gekk yfir hafið þennan febrúarmánuð, en þetta var um sama leyti og Þormóðsslysið varð hér við vesturströndina. Við vorum 14 sólarhringa að berjast frá Fleetwood til Fáskrúðsfjarðar. Fengum á okk- ur sjóa, misstum björgunarbát og annað brotnaði og laskaðist, og seglin öll fóru fjand- ans til. Skipið var hlaðið kolum. Þau köstuðust út í aðra síðuna svo skipið var með miklum halla. Það tók okkur langan tíma að moka kol- unum til, þannig að skipið rétti við. Eftir því sem tíminn leið gekk mjög alvarlega á matarbirgðirnar. Við vorum búnir að eta allt úr björgunarbátunum og fengum lítið síðustu dagana áður en við náðum til Fáskrúðsfjarðar. Skammturinn var lítill og aðeins einu sinni á dag. Síðast ekki annað en kex. Við vorum því sannarlega svangir en höfðum nægilegt vatn. Ástæða matarskortsins var sú, að úti fengum við ekki nema venjulegan skammt til venju- legrar heimferðar. Vegna stoppsins í Fleet- wood, út af viðgerð lekans, höfðum við hins- vegar etið upp allar þær birgðir, sem við fórum með að heiman. Við ætluðum til Reykjavíkur, en okkur hrakti svo mikið af leið, að fyrst þegar við sáum land voru það Austfjarðafjöllin, og þvívarhaldiðinn til Fáskrúðsfjarðará 14. degi. Þar spurðist strax út að við værum illa haldnir með mat. Þarna voru Bandaríkjamenn sem komu með bacon og ýmislegt fleira góð- gæti. Einn bóndi í grenndinni kom með nytina úr kúnni sinni um kvöldið, færði okkur fulla fötu af spenvolgri nýmjólk. í góðri vist á nýju skipi Árið 1943 hélt Sigurjón til náms í Sjó- mannaskólanum og lýkur vorið 1945 meira fiskimannsprófi. Námstíminn var tíðindalaus að hans dómi og að námi loknu heldur hann áfram hjá Aðalsteini Pálssyni á Belgaum og fylgir honum yfir á nýsköpunartogarann Fylki 1947. — Það var ólýsanlegur munur að fara á þessi nýju skip, segir Sigurjón. Þau voru nátt- úrlega miklu betri veiðiskip, en ennþá meiri munur var þó á aðbúð áhafnarinnar og vinnu- aðstöðu. Það var nánast eins og hvítt og svart, allt rýmra og betra. Það var meiri vinna um borð þá en nú. Allur fiskur var á stríðsárunum og lengi eftir bæði slægður og hausaður um borð. En með nýsköpunartogurunum breytist öll aðstaða svo að við byltingu má líkja. Um áramótin 1950/51 hættir Aðalsteinn Pálsson skipstjórn á Fylki, er þá orðinn aðal- eigandi útgerðarfélagsins og tekur nú við framkvæmdastjórn þess. Við skipstjóm á Fylki tók Auðunn Auðunsson. Sigurjón var með honum í hálft annað ár sem fyrsti stýri- maður og aflevsingaskipstjóri bæði á veiðum og í siglingum. Og 1952 bauðst skipstjórastarfið 1952 hefst nýr kapituli í sjómannslífi Sigur- jóns Stefánssonar. Hann varð 32 ára á því ári og hafði hálfa sína ævi verið háseti. numið sjó- mannsfræði og starfað sem 1. og 2. stýrimaður og skipstjóri i afleysingum. Veiðiferðir hans sem afleysingaskipstjóri höfðu tekist vel. Mikill aflamaður, Sigurður Guðjónsson frá Eyrar- bakka, var að hætta með Ingólf Arnarson, fyrsta nýsköpunartogarann og þar vantaði skipstjóra. Sigurjóni var boðin skipstjórastað- an. — Varst þú orðinn frægur þá? — Nei, það er nú ekki hægt að segja það, svarar Sigurjón með sömu hægðinni og var- káminni og einkennir allt hans tal. — Mér hafði þó gengið vel í þessum túrum, sem ég hafði verið með skip. Mér þótti vænt um boðið og ég tók því. Mín skipstjómarár á Ingólfi Amarsyni urðu síðan tuttugu talsins óslitin. — Hvernig var þessi tuttugu ára kafli í lífi þínu? — Það er ekkert nema gott um hann að segja. Þetta gekk alltaf vel, aldrei neitt reiðileysi og góð áhöfn með mjög góðum og samhentum kjarna. — Dreymdi þig fyrir afla og kannski hvert þú ættir að fara í leit að fiski? — Mig dreymdi alltaf fyrir afla og þó draumarnir væru ekki alltaf eins, þá var ég orðinn nokkuð öruggur um hvenær ég átti von á góðum afla. Þá dreymdi mig venjulega að ég SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.