Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Page 17

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Page 17
Raett vid Geir Gudmundsson um sjómannadaginn í Bolungarvík Geir Guðmundsson, formaður sjómanna dagsráðs í Bolungarvík. Þriðjudaginn eftir páska, í norðanhríð, ókum við Óshlíðina frá ísafirði til Bolungarvíkur. Landið var snævi þakið og haf- aldan barði ströndina. Það var því æði vetrarlegt að aka snjó- ruðninginn í hríðarkófinu, þótt komið væri framundir sumar- mál. Og sá sem einn er á ferð, að frátöldum ruðningsmaskínum, hlýtur ósjálfrátt að hugleiða hversu örðug sjósókn hlýtur að vera á þessum slóðum að vetr- arlagi, þar sem fjöll heita Stiga- hlíð, Ófæra og Banahieinar. Það var því gott að taka hús hjá Geir Guðmundssyni og fjöl- skyldu hans á Vitastíg í Bolung- arvík, því þótt húsið væri nær grafið í fönn var bjart yfir fólk- inu og þar ríkti sú stillta gleði er vandvirkni og sjósókn fylgir. Sjómannadagurinn í Bolungarvík — Sjómannadagurinn var fyrst hátíðlegur haldinn í Bolungarvík 29. maí 1939, er var 2. dagur hvítasunnu. Vafalaust hefur það fljótt komið til tals að halda hér hátíðlegan sjómannadag, eftir að sá siður var upp tekinn sunnanlands og víðar, — og árið 1938 komu 12 bolvískir sjómenn sarnan til þess að ræða um stofnun sjómannadags. Var þar einróma samþykkt að vinna að því að halda hátíðlegan sjó- mannadag á komandi vori. Þeir, sem frumkvæðið áttu að þessurn fundi, voru Kristján Þ. Kristjánsson og Óskar Halldórs- son, en auk þeirra mættu á þessunr fyrsta sjómannadagsfundi í Bol- ungarvík eftirtaldirsjómenn: Gísli Hjaltason, Gísli Kristjánsson, Sig- urður E. Friðriksson, Finnbogi Bernódusson, Bjarni H. Jónsson, Jón Kr. Guðnason, Ólafur Péturs- son, Guðmundur Halldórsson, Jón Tímótheusson og Salomon Kristjánsson. Konru þeir tólfmenningarnir sér saman um að vinna allir í sameiningu að undirbúningi há- tíðahaldanna og kusu Gísla Hjaltason formann nefndarinnar. Héldu þeir með sér nokkra fundi, og um vorið, hinn 29. maí, var fyrsti sjómannadagurinn í Bol- SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 17

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.