Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Síða 19

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Síða 19
Frá kvöldskenimtun á sjómannadaginn í Bolungarvík fvrir tveim árum. Nefndin sem sá um kvöldskemmtun sjómannadagsins. Þarna má sjá skipstjórana og vélstjórana á ýmsum þckktum skipum í Bolungarvík. Þuríður sundafyllir sé enn við lýði, en nú sem steindrangur í Óshlíð. Sagan segir að sá sem geti klifið upp að mitti á Þuríði, muni finna fyrir stórt og mikið belti, en við það hangi lyklahringur og lykill. Og þegar bjargmaðurinn hefur náð lyklinum, þá á að fljóta upp gullkista, full af gulli, í vatni fram í Syðri-dal. Vatnið heitir Miðdals- vatn. Meinið er hinsvegar, að engum hefur enn tekist að klífa Þuríði. Þannig að okkar gullskip bíður óhreyft, ef svo má orða það. Enda án efa örðugt að klífa kerl- ingu. Þjóðsagan segir að Þuríður sundafyllir hafi átt bróður, er Þjóðólfur hét. Hann kom út hing- að á eftir henni. Hann bauð Þuríði að fá sér land í Bolungarvík, en hún leyfði honum svo mikið land sem hann gæti girt fyrir á dag. Hann fer til og leggur garð frá Stiga og vildi girða fyrir Hlíðardal og Tungudal, en komst ekki lengra en á miðjan Tungudal um daginn, og sjást þess merki enn hvar hann lagði garðinn. Þjóðólfur kallaði sér báða dalina, en Þuríður þóttist eiga þann dalinn er eigi var girt fyrir til f ulls og varð svo að vera sem hún vildi. Þetta líkaði Þjóðólfi stórilla og hugðist að hefna sín og stela nauti sem Þuríður átti á Stigahlíð. Þuríður varð vör við er hann gekk á hlíðina og fór á eftir honum,en hann tók nautið og vildi leiða heim. Þau mættust þar sem nú heitir Ófæra, innst á hlíðinni. Hún réð þegar á hann og vildi taka nautið, en fékk ekki atgjört. Varð hún þá svo reið að hún lagði það á hann að hann yrði að steini þar sem flestir fuglar á hann skiti, en hann lét það um mælt á móti að hún yrði að standa þar sem vindur nauðaði mest á og stendur hún nú efst á norðurhominu á Óshlíð. Þjóðólfur varð að kletti og valt fram í sjóinn og lenti á klöpp sem upp úr stóð. Sá klettur var jafnan alþakinn af fuglum og stóð þar þangað til 1836 um haustið, hvarf hann í logni og ládeyðu eina nótt svo enginn vissi hvað af varð. Allir muna Bolvíkingar eftir Þjóðólfi og vissu gjörla hvar hann stóð því hann var stakur og róið framhjá honum hvurt sinn er á sjó var far- ið, og fullyrða allir í einu hljóði að svo sé grunnt allt í kringum klöpp- ina sem hann stóð á að hann geti þar hvurgi legið, en segja hann fyrir því hafa horfið að þá hafi verið úti álögutíminn. Gjörla sást merki hvar hann stóð á skerinu og hefur hann verið rúmra fimm faðma á þann veginn sem niður hefur snúið ... Þjóðólfur lagði svo á hana á móti að hún yrði einnig að steini, sem varð. Ekki skal ég fullyrða um gerð þessarar sögu, en garðar, eða grjótgarðar, torkennilegir voru hér lengi. Þeir síðustu voru teknir í hafnargerðina. Og við þjóðsöguna er svo því að bæta, að merkur maður hér, Finnbogi Bernódusson, er oft fór með eitt og annað efni á sjó- mannadaginn, ýmisst í formi ræðu, eða frásagnar, greindi frá því, að þegar hann var barn þá hefðu eldri menn sagt sér, að það hefði verið steinn út með Stiga- hlíð. Mjög áberandi stór steinn í flæðarmálinu. Svo var það eitt sinn um vor í mjög góðu veðri, að steinninn var horfinn. Steinninn var áberandi frá sjó, eða hafði verið það. Og síðan hefur hann ekki sést, en þetta átti að vera Þjóðólfur, þann- ig að hann hefur sannarlega staðið fram á seinustu öld, eða til 1836. — En svo aftur sé vikið að sjó- mannadeginum. Hvenær hefst undirbúningurinn hjá ykkur? — Eins og áður sagði, þá sjá starfandi sjómenn um þetta. Núna eru fundahöld að byrja, en við kjósum nokkrar starfsnefndir. Fyrsti fundurinn er í kvöld (5.4. 1983). Við höfum t.d. sérstaka róðranefnd, sérstaka nefnd sem sér um beitningu, sérstaka úti- SJÓMANNADAGBLAÐIÐ 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.