Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Side 76

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Side 76
samkvæminu. Það fannst lækninum líka, og það var ólíkt Einari Benediktssyni að bregðast þeim góðu löndum sem þyrsti í sögur og ljóð. Hann tók útúr glasinu, lygndi augunum einsog hann væri að rifja eitthvað upp og fór svo að lesa Útsæ uppúr sér, milt en þó innilega. Hve myndir og skuggar miklast í þínu veldi. — Ég man þig um dægur, er skín ei af ári né kveldi. Þá lyftirðu þungum og móðurn bylgju- barmi og bikar hins volduga myrkurs þú drekkur á höfin. Augu þín lykjast undir helsvörtum hvarmi. en hart þú bindur að ströndunum líkfölu tröfin. — Þá er eins og líði af landinu svipur af harmi. Þeir leita í þínum val undir marareldi, — og mæðuandlit svefnþung á svæfli og armi sjá þá, er varstu bæði lífið og gröfin! Þjónninn kont og skipti aftur um flösku. — Slökktu djöfuls ljósið! sagði Bal- tazar. — En mennirnir ætla þó varla að sitja í myrkrinu? — Kvæðin hans Einars lýsa betur í ntyrkri! sagði læknirinn. Ljósið var slökkt en fyrst var hellt í glösin. Og þetta langa særingaljóð dró net sín gegnum myrkrið fyrir ögn hræðri en yfirvegaðri og hálfbældri rödd skáldsins, þangaðtil í lokaerindinu að hún lyftir sér á breiðum vængjum og heilsar nýjum degi. — Sem leikandi börn á ströndu, er kætast og kvarta, með kufung og skel frá þínu banvæna fangi, ég teyga þinn óm frá stormsins og straumanna gangi stirnandi, klökka djúp, sem átt ekkert hjarta. — Missýnir. skuggar, mókandi ey og drangi, myndaskipti þín öll, þau skulu mér fylgja. Þó kalt sé þitt brjóst, þar sem bliknar geislanna sylgja, þó björgin þú knýir til ákalls, en svarir ei neinu. ailt það, sem hjúpur þíns hafborðs gjörir að einu, hnígur að minni sál eins og ógrynnis- bylgja. Þeir tæmdu glösin þegjandi. Lengi var ekkert sagt.“ Og áfram siglir Botnía og án þess að vita skil draums og veruleika, staðreynda og svonefndra staðreynda, er sjóferðin með Heinesen, líkari raunverulegum sjó- ferðum, en ntargar ferðir með skipum: „Upp úr miðnætti tók veðrið að hægja hann gekk i norðrið; stjörnur fóru að kvikna uppyfir brimsollnu hafinu þar sem frostrósirnar lágu eins og glitrandi silfur- keðjurá lafmóðum öldubrjóstunum.“ Gullfoss Það er mál manna, að raunverulega hafi millilandaferðir með farþegaskipum til og frá fslandi ekki komist í viðunandi horf. fyrr en MS GULLFOSS, fyrsta skip Eimskipafélagsins kom í gagnið, en skipið kom til iandsins 15. apríl 1915 og var skipstjóri þar Sigurður Pétursson — og æ síðan, þar til skipið varð innlyksa í stríð- inu í Kaupmannahöfn og hertekið af Þjóðverjum árið 1940. Gullfoss var fyrsta vélknúna milli- landaskipið, sem smíðað var sérstaklega fyrir íslendinga. Gullfoss tók 74 farþega á farrými, þar af 44 á fyrsta pláss, eins og það var nefnt. Gamli Gullfoss var einkum í Kaup- mannahafnarferðum, en þó ereinsog það liafi gleymst. að skipið var einnig mikið í Ameríkusiglingum og líklega fyrsta ís- lenska skipið, sem sigldi til Ameríku, eftir að Vínlandsferðunum lauk. Sigldi Gull- foss á New York og Halifax, en eftir að fyrra stríðinu lauk var skipið í tvo áratugi í Sigurður Pétursson, skipstjóri. „...skrautbúin skip fyrir landi flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim“. — J.H. 74 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.