Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Side 78

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Side 78
Frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík Umsóknarfrestur um skólavist fyrir næsta ár 1983 — 1984 er til 20. júní n.k. Inntökuskilyrði í 1. bekk eru: 1. Siglingatími: 24 mánaða hásetatími eftir 15 ára aldur á skipum yfir 12 rúmlestir. Skólastjóra er þó heimilt að meta annan siglingatíma. 2. Grunnskólapróf (9. bekkkur) eöa hliðstætt próf. Auk þess skulu umsækjendur leggja fram vottorð um sjón, heyrn og málfæri, sem yfir- mannsstaða krefst og skal augnvottorð vera frá augnlækni, almennt heiibrigðisvottorð, saka- vottorð og sundvottorð. Fyrir þá, sem fullnægja ekki skilyrði um grunnskólapróf eða hliðstætt próf er haldiö námskeið og verður sérstaklega tilkynnt um það. Inntökupróf fyriröll stigin verða haldin 2. og 3. september. Skólinn verður settur 1. september nk. Hann starfar í 2 önnum: Fyrri önn: Frá 1. september — jóla Síðari önn: Janúar — maí Nýjum umsækjendum er sérstaklega bent á eftirfarandi: Treysti hann sér t.d. af erfiðum fjárhags- ástæðum aðeins til að taka fyrri hluta einhvers stigs — þ.e. sitja í skóla fram að jólum, getur hann lokið önninni fyrir jól. Efnalitlir sjómenn ættu að íhuga vel þennan möguleika á námi. Ef margir umsækjenda hefðu hug á þessu fyrir- komulagi á námi sínu, þá yrði hugsanlega unnt að mynda sérstakan bekk, sem lyki þá síðari hlut á næstu haustönn — fyrir jól 1984. Inntökuskilyrði á 2. stig er skipstjórnarpróf 1. stigs og fullnægjandi framhaldseinkunn í stærðfræði (5), eðlisfr., rafmagnsfr., ensku og dönsku (4 í hverri grein). Inntökuskilyrði á 3. stig er skipstjórnarpróf 2. stigs eftir 1967 og fullnægjandi framhaldseink- unn. Haldið verður 4. stig meö sama sniði og vet- urinn 1982 þ.e. aukin kennsla í almennum greinum, mælingar (einkum með tilliti til sjó- mælinga), efnafræöi, tungumál ,,shipping“ o.fl., ef nægileg þátttaka fæst. Inntökuskilyrði á 4. stig er aö hafa lokió 3. stigi með 1. einkun og framhaldseinkunn í sigl- ingafræði, ensku og stærðfræði. Athugið: Umsóknareyðublöð og nánari upp- lýsingar um Inntökuskilyrði og nám í skólanum fást hjá erindrekum og trúnaðarmönnm Fiski- félags íslands um land allt. Heimavist og mötuneyti er í skólanum. Skrifið eða hringið. Sími ritara er: (91) 13194. Sími skólastjóra: (91) 13046. SKÓLASTJÓRI 76 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.