Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 33

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 33
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 31 ,,Því var spáð af mörgum að eftir úrsögnina mundum við einfaldlega lognast út af. En raunin hefur orðið önnur. “ (Ljósmynd Sjómannadagsblaðið / Björn Pálsson) mgur var gerður við sjómannasamtök- in um að engir nema Finnar væru um borð - en sjómennirnir féllust á móti á 15% launalækkun. Öðru máli gegnir um Norðmenn, sem tóku það til bragðs að búa til alþjóðlega skrán- ingu, þannig að „allra þjóða kvikindi“ geta verið á þeirra skipum. Hjá þeim voru engar hliðarráðstafanir gerðar, þannig að ekki nema um 3% undir- manna eru nú norskir. Fyrir vikið er nú skortur á norskum ungmennum í þarlendunr sjómannaskólum. Eg hef verið talsmaður dönsku leið- arinnar hér á landi nokkuð lengi, en þótt ég og fleiri tala fyrir daufum eyr- um. Loks nú eru menn farnir að hug- leiða svipaðar ráðstafanir og sjá að þær eru það skynsamlegasta sem hægt er að gera í þessari stöðu. En þótt af því verði nú þá koma þær býsna seint. Það má sjá af því að um síðustu ára- mót voru aðeins sex kaupskip undir íslenskum fána en voru 45 árið 1988! Þegar búið er að manna skipin útlend- ingum í svo miklum mæli þá gefur það auga leið að enginn leikur er að snúa þróuninni við. Þetta eru afleið- mgar þess hve lengi menn voru að sjá hvert stefndi og hvað var í húfi. Þegar skipi hefur verið flaggað út gilda ís- lensk lög ekki um borð í þeim meir og útgerðirnar geta ráðið hverja sem þær vilja. Þó er nokkur von enn. Nokkru áður en Steingrímur J. Sigfússon hætti sem samgönguráðherra skipaði hann nefnd til þess að gera tillögur um þetta efni og sat ég í henni meðal annarra. Við gengum frá frumvarpi til laga um alþjóðlega skráningu, en stuðningur okkar við hana er auðvitað skilyrtur: Við gerum þá kröfu að svo verði frá málunum gengið að farmennirnir okk- ar verði þokkalega samkeppnishæfir við útlendingana. Samþykkjum við alþjóðlega skráningu án slíkra hliðar- ráðstafana erum við aðeins að sam- þykkja að það nægi að hafa útlending- ana - þá ráðum við engu. í ræðu minni við setningu síðasta Vélstjóraþings sagði ég að forsenda þess að einhver árangur náist í þessu máli sé að öll sjómannasamtökin verði sammála. Komi til þess að einn segi þetta og annar hitt mun vissulega ekkert ger- ast.“ Nýtt og glæsilegt vélstjóratal ,,Að endingu vil ég snúa mér að þeim menningar- og félagsmálalegu fram- kvæmdum sem eru í gangi. Arið 1992 var skipuð nefnd í þeim tilgangi að gefa út nýtt vélstjóratal og miðar þeirri vinnu vel. í gamla talinu sem kom út 1972 voru nöfn 1150 vélstjóra, en nú erum við þegar komnir með 2600. Hins vegar telur ritstjórinn, Franz Gíslason sagnfræðingur, að nafnafjöldinn sé í kring um 7600. Ekki vitum við enn hvenær verkið kemur út, en líkur eru á að sjálfri söfn- uninni Ijúki fljótlega. Er ekki ósenni- legt að botninn verði sleginn í hana með samræmdri herferð. Þótt við ná- um ekki að gera hverjum og einum skil þá er það ekki svo lítill árangur að við höfum meira en tvöfaldað þann fjölda sem var í gamla talinu. Nýja vélstjóratalið gæti geymt yfir 3000 nöfn og yrði þá þrjú bindi. Kostnaður verður um 10-12 milljónir. Við lítum á þetta sem stórt menningarlegt fram- tak, sem aðeins öflug samtök geta ráð- ist í eins og ég áður sagði. Þá eru það orlofsmálin: Við eigum sumarbústaðaland austur við Lauga- vatn, en meðal þess fyrsta sem ég sneri mér að hér var að ljúka við bygg- ingu 12 orlofshúsa sem hafið var að reisa 1968, en framkvæmdir lágu niðri við þau í um 8 ár. Þetta eru raðhús og lauk verkinu árið 1980 að mig minnir. Til viðbótar hafa nú verið byggð tvö ný hús ásamt sundlaug og húsvarðar- hús. Aform eru uppi um að byggja yfir sundlaugina og verður það hús gegnsætt og um 300 fermetrar. Tvær íbúðir á félagið einnig og er önnur í Reykjavík en hin á Akureyri og er þá ótalið hús austur í Egilsstaðaskógi. Af þessu má sjá að Vélstjórafélag íslands eru sívaxandi samtök sem hafa mikið umleikis.“ Hér látum við spjallinu við Helga Laxdal lokið og óskum honum og fé- lagi hans besta gengis og árangurs- ríkrar sóknar, hagsmunum vélstjóra- stéttarinnar til heilla. AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.