Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 4
4
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Avarp
Á næsta ári fagnar Sjómannadagurinn 60 ára afmæli sínu og þótt afmælisárið sé
enn ekki upp runnið má segja að þegar sé byrjað að fagna því með margvíslegu
móti, eins og glögglega kemur fram í þessu 59. tölublaði Sjómannadagsblaðsins:
Stórfenglegasta framtakið er vissulega vígsla og blessun hinnar glæstu sundlaugar
og endurhæfingarstöðvar við Hrafnistu í Reykjavík, sem vígð var hinn 5. mars sl.
og rækilega er sagt frá hér. En fleira hefur verið afrekað: Með minningaröldum Sjó-
mannadagsins sem nú hafa risið við Fossvogskapellu er bætt úr viðkvæmum vanda
— að finna stað þar sem ættingar sjómanna og annarra sæfarenda sem farist hafa
og ekki komist í vígða mold geta minnst sinna nánustu. Hörmuleg og svo allt of
mörg sjóslys sem orðið hafa frá því er blaðið kom síðast út undirstrika vel hve brýnt
það var að veita þeim sem hlut eiga að máli færi á að eignast helgireit á borð við
minningaröldumar. Sjómannasamtökin votta þeim sem um sárt eiga að binda eftir
nýliðinn vetur hjartanlega samúð og döpur í huga lesum við þann langa lista sem
árleg upptaling okkar á þeim sem farist hafa á sjónum er að þessu sinni.
Þá er það einnig í tilefni af komandi 60 ára afmæli Sjómannadagsins að á sjó-
mannadaginn mun höfuðborgin loks eignast styttu sem reist er til vegs og virðing-
ar reykvískum sjómönnum og sjósókn. Má segja að mál hafi verið til komið, því
flestar stærri útgerðarstöðvar hafa þegar reist sjómönnum sínum styttur eða minn-
ismerki. Gott er til þess að vita að styttunni hefur verið kosinn staður á einum
fegusta stað borgarinnar — á miðbakkanum við Reykjavíkurhöfn.
Um þetta blað er það annars að segja að enn er haldið við þá stefnu að fá gamla
sægarpa til þess að rifja upp sitthvað frá ferli sínum og forða því þannig frá gleym-
sku, auk þess sem merkilegt efni úr siglingasögu þjóðarinnar er hér að finna, þar
sem samþættast frásagnir af skipum og mönnum liðins tíma. Ekki skal hér fleira um
efni blaðsins rætt, en von okkar er sú að menn muni finna þar sitthvað sem áhuga-
vert og forvitnilegt muni þykja.
Að þessum orðum skrifuðum leyfir blaðið sér fyrir hönd Sjómannadagsins í
Reykjavík og Hafnarfirði að óska öllum íslenskum sjómönnum til hamingju með
daginn og fengsældar og farsældar á komandi tímum.
Atli Magnússon
Fulltrúaráð Sjómannadagsins 1997 í Reykjavík og Hafnarfirði
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan: Skipstjóra- og stýrimannafélagið Kári: Matsveinafélag íslands:
Sigurður Óskarsson Þórhallur Hálfdánarson Þorbjörn Pétursson
Guðmundur Ibsen Ingvi Einarsson Einar Jóhannesson
Vélstjórafélag íslands: Skipstjóra- og stýrimannafélagið Ægir: Félag Bryta:
Jón Guðmundsson Sigurjón Stefánsson Rafti Sigurðsson
Sveinn A Sigurðsson Daníel G. Guðmundsson Sigurður Hjálmarsson Kári Halldórsson
Asgeir Guðnason Skipstjórafélag íslands: Sigurður Steinar Ketilsson Stjórn Sjómannadagsins 1997: Fonnaður: Guðmundur Hallvarðsson
Sjómannafélag Reykjavíkur: Guðmundur Hallvarðsson Kristján Sveinsson Varaformaður: Guðmundur Ibsen Ritari: Hálfdán Henrýsson
Erling R. Guðmundsson Félag íslenskra loftskeytamanna: Gjaldkeri: Þórhallur Hálfdánarson
Skjöldur Þorgrímsson Ólafur K. Bjömsson Varagjaldkeri: Dam'el Guðmundsson
Jónas Garðarsson Birgir H. Björgvinsson Reynir Bjömsson Varamenn í stjórn: Hörður Þórhallsson
Stýrimannafélag Islands: Hálfdán Henrýsson Guðlaugur Gíslason Sjómannafélag Hafnarfjarðar: Eysteinn Guðlaugsson
Óskar Vigfússon Eysteinn Guðlaugsson Olafur K. Bjömsson
Sjómannadagsblaðið
kemur út á Sjómannadaginn ár hvert
og er sent í pósti til áskrifenda.
Áskrift í síma 5538465
Verð kr. 600.00-
ÚTGEFANDI:
Sjómannadagsráð
Hrafnistu DAS Laugarási,
104 Reykjavík
RITSTJÓRAR:
Atli Magnússon
Garðar Þorsteinsson ábm.
RITNEFND:
Ólafur K. Björnsson
Vilmundur Víðir Sigurðsson
Sigurður Þ. Arnason
PRENTVINNSLA:
Prentsmiðjan Grafík hf.
UÓSMYND Á KÁPU:
Halldór Guðmundsson, arkitekt, -
höfundur Minnisvarðans um
Óþekkta sjómanninn og
Minningaralda Sjómannadagsins.
AUGLÝSINGAR:
Jón Kr. Gunnarsson