Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 13
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
13
og önnur þjónustuatriði. Sama á við
um aðra mína næstu stjórnendur og
ekki síst vil ég þakka stjórn Sjó-
mannadagsráðs, sem alltaf hefur sýnt
heimilunum og málefnum þeirra sér-
stakan skilning. Einmitt til stjórnar í
Sjómanndagsráði hafa valist menn
sem hafa haft tækifæri til þess að
kynna sér til hlítar hina umfangsmiklu
starfsemi Sjómannadagsins, og vona
ég að við berum gæfu til þess að þeir
menn sem þar sitja ílengist í starfi.
Umsvifin eru slík að aldrei má horfa
til aðeins skamms tíma — þessi öfl-
ugu samtök eru komin til þess að vera
og eru enn að eflast. Sess okkar í
þjóðfélaginu verður stöðugt traustari,
æ fleiri leita til okkar að spyrja ráða
vegna reynslu okkar — og þá ekki síst
erlendis frá. Menn hafa rekið upp stór
augu og spurt hvort það væri virkilega
svo að hér gætu yfir- og undirmenn
setið saman og rætt ákveðin mál og
leitt þau til farsælla lykta og það er
okkur mikil ánægja að staðfesta að
svo sé. Hér hefur aldrei komið upp
ágreiningur sem staðið hefur starfinu
fyrir þrifum og okkur hefur tekist að
halda heimilunum fyrir ofan allan
ágreining.”
Ókeypis kaffí og meðlæti á
Sjómannadaginn
“Vissulega höfum við átt í örðug-
leikum fjárhagslega eins og allur heil-
brigðisgeirinn. Undanfarin ár höfum
við gert mikið átak í því að skoða hina
innri starfsemi og orðið að fækka
stöðugildum, en þó sem betur fer ekki
þurft að segja upp fólki, heldur hag-
rætt innan frá og fært fólk til. Þannig
hefur það líka sýnt sig undanfarin ár
að við höfum getið haldið rekstri
þessara fyrirtækja á línunni, og ber
það fyrst og fremst að þakka fjármála-
stjórn heimilanna. Líti ég til baka þá
byrjaði þessi endurskoðun í heilbrigð-
iskerfinu fyrir um áratug og ég trúi
því og vona að nú sé búið að gera svo
mikið í þeim málum að við getum að-
eins farið að líta upp. Mikið er búið að
laga og endurbæta og það fólk sem að
því hefur komið hefur sýnt mikla
ósérhlífni. Mér er ánægja að benda á
að við byrjuðum á að hagræða ofanfrá
— hér er sameiginlegur forstjóri,
sameiginleg fjármálastjórn og fjöl-
mörg önnur atriði. A það við um eld-
húsin að þar er sami matseðill á báð-
um heimilunum og þvott annast
Hrafnista í Reykjavík að heita má ein-
göngu. Fleira mætti telja. Allt hefur
þetta orðið til þess að svo gæfusam-
lega hefur tekist til að hægt hefur ver-
ið að reka heimilin án þess að til stór-
ra skakkafalla hafi komið.
Að lokum vil ég geta þess að í til-
efni af afmælum beggja heimilanna
verður opið hús á Sjómannadaginn og
fólk getur komið hér og séð hvernig
við búum að heimilisfólkinu. Kaffi og
meðlæti verður ókeypis og ég veit að
menn munu sanfærast um, þegar þeir
bragða á veitingunum, að þeir sem
hér búa eru ekki vanhaldnir. Kostur
verður og gefinn á að skoða það sem
við bjóðum í heilsugæslu og endur-
þjálfun, sundlaugarnar, félagslíf og
alhliða aðbúnað annan sem við höfum
stórlega verið að auka. Vonum við að
margir verði til að nota sér þetta boð
okkar.”
AM
Jíafnarfjarðarbœr sendir öllum
íslenskum sjómönnum árnaðarósbir
á fátíðisdegi jpeirra
Sendum öllum íslensfum
®
sjómönnum árnaðarósfir
á íuítíðisdegi þeirra íslenskar sjávarafurðir hf.