Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 52

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 52
52 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ treystir þér til að ljúka fyrsta vetrinum strax, þá vinnur þú bara um sumarið og sest svo aftur í fyrsta bekk.“ Ég sá að þetta var alveg rétt og fór að ráðum Halldórs, safnaði svo mörgum sigl- ingatímum sem ég gat og settist í skólann haustið 1940. Gekk það allt vel og ég lauk náminu 1942, en skól- inn var tveir vetur. Þakkaði ég það áhuganum einum og góðri ástundun. Sumarið 1941 var ég á togaranum Gylfa og sigldum við með fisk til Englands. Þar urðum við vitni að því að olíuskip var skotið niður af kafbáti skammt frá okkur og það var ógurlegt á að horfa — sjórinn var eitt eldhaf. Sjálfir urðum við varir við sjónpípu á kafbáti, en ekki urðum við þess varir að hann skyti á okkur.“ Skutull lyftist á sjónum við sprenginguna „Að fengnum réttindum úr Stýri- mannaskólanum fór ég fyrst á Hauka- nesið í Hafnarfirði með Nikulási heitnum Jónssyni, en hann hafði ver- ið með Otur áður, og sigldum við með fisk til Englands. En svo varð eitt- hvert hlé á þessum siglingum og þeg- ar ég eitt sinn var staddur niðri á Æg- isgarði hitti ég þann kunna mann Guðmund Thorlacius sem verið hafði annar stýrimaður á Gulltoppi og býr nú sem aldraður maður við Nýlendu- götu. Hann tók mér vel að vanda og segir: „Heyrðu Þorsteinn, þú þarft að fara að verða 2. stýrimaður.“ Ég tók því ekki fjarri en Guðmundur var þá stýrimaður á Skutli. Réði ég mig nú til hans sem 2. stýrimaður og var það mitt fyrsta stýrimannspláss, en skip- stjóri á Skutli var þá Árni Ingólfsson. Við urðum ekki jafn mikið varir við stríðátökin og margir íslenskir sjó- menn en nokkuð þó. Við lágum á Humberfljótinu rétt utan við Grimsby, nýlega búnir að landa og vorum að bíða eftir skipalest. Þá var mikil loft- árás gerð á bæinn að næturlagi. Við vorum í eldlínunni miðri enda settu Þjóðverjar niður ljósblys til þess að sjá skotmörkin betur. Þeir vörpuðu sprengjum niður yfir skipin og lenti ein þeirra milli okkar og um tíu þús- und lesta olíuskips sem var í um 150 metra fjarlægð frá okkur. Var kraftur- inn í sprengjunni slíkur að Skutull Þorsteinn Auðunsson: „Þarna tví- hlóðu þeir skektuna um nóttina og veiddu alls 400 fiska. “ A veggnum bak við Þorstein eru myndir af þeim Svalbak og Kaldbak. (Ljósm. Sjómdbl. AM) hristist ekki, heldur tókst hann bók- staflega á loft. Á samri stundu var fyrsti vélstjóri á leið upp úr vélarrúm- inu og gat ekki betur gert en svo að hann dinglaði á öðrum handleggnum á handriðinu og fór við það úr axlar- liðnum. En svo gekk þessi hrina yfir og við héldum niður fljótið. Við reyndum eftir bestu getu að koma öxl- inni á vélstjóranum í lag, en tókst það ekki með nokkru móti. Var þá kallað á dráttarbát sem fylgdi okkur og hann beðinn um aðstoð. Sótti báturinn manninn og fór með hann í land þar sem liðnum var komið í samt horf. Á meðan urðum við að fara upp eftir aft- ur og bíða hans í um það bil sólar- hring. Kostaði það líka að við urðum að fara í land og bæta við vatnsbirgð- irnar sem jafnan voru af skornum skammti. En um síðirþótti vélstjórinn nógu hress til þess að hægt var að koma honum um borð til okkar aftur. Þetta kostaði að við urðum að taka aðra skipalest og hélt hún norður með landinu. Ekki fylgdum við lestinni þó lengra en norður undir Firth of Fo- urth, þar skildumst við við hana og sigldum einskipa heim úr því. Ferð- irnar sem ég fór yfir hafið á stríðsár- unum voru margar, því ég sigldi allt frá því er ég hætti í skólanum og til 1944.“ Stýrimaður hjá Sæmundi á Kaldbak „En árið 1944 réði ég mig til Ragn- ars Guðmundssonar skólabróður míns. Hann var þá með Kristján frá Akureyri og gerðist ég stýrimaður hans. Við vorum á trolli um vorið en fórum svo á sfld. Óhemjusíldveiði var þetta sumar og hluturinn því góður. Að því ævintýri loknu fór ég á einn minni togaranna, Kópanesið, en þá var Halldór Gíslason, fyrrum skip- stjóri á Gulltoppi, búinn að kaupa skipið. Það hafði áður heitið Hilmir. Þar var ég annar stýrimaður og leysti af sem fyrsti stýrimaður. Þarna var ég fram til sumars 1946 þegar ég fór á síld á Sindra með Jónmundi Gísla- syni. Þá var þessum gömlu togurum farið að fækka og búið að selja marga þeirra til Færeyja. Ekki er margt frá þeirri dvöl að segja. Um haustið 1946 var ég um tíma með Hugrúnu frá Bolungarvík í flutn- ingum og var með hana fram yfir ára- mót 1947, þegar nýsköpunartogararn- ir fara að koma hver af öðrum. Þá var ég ráðinn hjá Sæmundi bróður mínum á Kaldbak, sem Útgerðarfélag Akur- eyringa átti að fá og koma skyldi til landsins um vorið, en hann var þriðji nýsköpunartogarinn sem til landsins kom. Fór ég þegar í byrjun aprfl að út- búa troll og annað sem til þurfti fyrir þetta nýja skip. Fékk ég aðstöðu inni í Hampiðju og þar bjó ég til troll úr hampstykkjum, sem ég man ekki lengur hvort búin voru til í vélum eða þá af einhverjum stúlkum sem þarna unnu. I maí héldum við svo utan að sækja skipið en hann var einn þeirra af nýsköpunartogurunum sem smíð- aður var í Selby við Humber en alls held ég að fjórar skipasmíðastöðvar hafi smíðað nýsköpunartogarana. Við Humber var auk Selby skipasmíða- stöðin Beverly, ef ég man rétt, sem smíðaði m.a. Fylki, Skúla Magnússon og Röðul. Smíði Kaldbaks var lokið í Hull og þangað sóttum við hann. Til Reykjavíkur var komið um miðjan maí, og þegar búið var að setja bræðslutækin í skipið var haldið á veiðar. Veiðarnar gengu frábærlega vel þessa vertíð og siglt var með afl- ann á England. Man ég að í fyrsta túrnum fylltum við skipið á tíu dög- um, rúm 300 tonn, og var allur fiskur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.