Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 68

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 68
68 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ borð - - og loftið í klefanum var orðið svo vont að það ætlaði okkur lifandi að drepa. Engan mat var að hafa nema smurt brauð, kaffi og te. Þar að auki hafði tilkynningin um að okkar hópur ætti að fara með komið svo seint að maturinn nægði hvergi handa öllum. En flugfreyjan bjargaði því með að taka af mat áhafnarinnar, svo við fengurn eina brauðsneið og bolla af kaffi. Ferðin til Prestwick tók fimm tíma og fegnir vorum við að lenda. En þá skeði skrýtinn atburður: Þeg- ar við komum inn í flughöfnina í Prestwick förum við auðvitað að sýna tollvörðunum farangur okkar. Vill þá ekki svo til að ég mæti gaurnum sem tekið hafði af mér pundin úr bóka- skápnum þegar ég var á Júní forðum. Eg spurði á góðri ensku hvort hann þekkti mig ekki, en margt fólk var umhverfis okkur. „Nei“, svarar hann en verður heldur kvikindislegur á svipinn og eldroðnar. „Ja, ég sé að þú þekkir mig,“ segi ég. Fólkið umhverf- is sá hvað um var að vera og fór að skellihlægja. „Jæja,“ segi ég, „Viltu nú ekki láta mig hafa pundin sem þú tókst til varðveislu fyrir mig.“ Hann rekur upp stór augu og segist engin pund hafa fengið hjá mér. „Nei, ein- mitt það,“ segi ég. „Þá er best að þú eigir þau — þetta var svo lítið. Ætli þér veiti af því,“ ansaði ég. Og sjá fólkið! Það gapti af undrun og sér- staklega á tollþjóninn, því hann varð eins og eldhnöttur í framan. Þarna fékk ég hefnd þótt seint væri!“ Hrakningaför með Herðubreið „Við vorum nú fluttir með lang- ferðabíl til Greenock, þangað sem skipið var. Þar tók við mikil liörm- ungarnótt: Við gistum í borð í skipinu. Hörkufrost var úti og það svo að það fraus á manni typpið þegar maður pissaði. Engin hitalögn var um borð, fáein teppi í nokkrum farþegaklef- anna og tókst mér að leggja eitt þeirra undir mig. Þarna vorum við í hálfan mánuð, meðan var verið að gera skip- ið klárt til siglingar. Einhverjar vörur tókum við í Glasgow. Þá var lagt af stað heimleiðis og er ekki að orðlengja það að þá var kom- ið kolbrjálað norðanveður, en þetta var rétt fyrir jólin. Endaði þetta með því að við urðum að fara inn á eina af Hebridseyjunum, enda voru þá allar dælur orðnar stíflaðar af skít og drullu í ofanálag og ekki hægt að lensa, svo hreinsa þurfti kjalsogið. Kostaði það okkur tveggja daga töf meðan tveir menn skriðu niður í kjalsogið og hreinsuðu það. Stífa þurfti vélina af á meðan, því ef sveifarásinn hefði farið í gang á meðan á þessu stóð hefði far- ið illa. Eftir þessa hreinsun var loks hægt að lensa. Þar með var haldið af stað, enn í þessu aftakaveðri, og var furða hve skipið sópaði af sér sjónum og það gekk einar tíu mílur. A leiðinni fórum við fram hjá einum af þessum nýsköpunartogurum sem voru um 900 smálestir. Hann lá kyrr og hélt sjó, en við sigldum áfram. Og þegar við komum inn í Reykjavíkurhöfn var ekki hægt að sjá hvort þetta væri skip eða ísjaki. Allt var klakabrynjað og hver spotti margfaldur á þykkt. Við urðum enda að berja miskunnarlaust af skipinu á leiðinni. Þarna var ég bryti og kokkur um leið. En þegar heim kom réði ég messagutta og stúlku til þess að annast farþegana. Á Herðubreið var ég frá 1947 til 1951. Þá fór ég um borð í Esjuna sem yfirkokkur og hlaut vitanlega meiri laun um leið. Þar hafði ég bæði hjálp- arkokk og búrmann. Á Esju var ég í fimm ár, eða til 1955, en þá fór ég að fullu og öllu í land.“ Ýmsir húsbændur „Eftir að í land kom fór ég til vinar míns Brynjólfs Brynjólfssonar á Café Höll. Þar var ég í tvö ár uns ég 1958 fer á Gildaskálann — sem ég aldrei hefði átt að gera — og ekki vil ég hafa mörg orð um vist mína þar sem var slæm. Eg ætlaði að fara upp í Borgar- nes sama sumar og ég hætti á Gilda- skálanum og ætlaði að vera þar um veturinn. En þá fannst hótelstjórninni að ég væri allt of dýr kokkur, þar sem ekkert væri um að vera á veturnar — sem var tóm vitleysa því þarna störf- uðu margir klúbbar sem héldu sam- sæti og árshátíðir. Þar með fór ég í byggingarvinnu hjá Loftleiðum — elstur tólf stráka sem þar unnu og var verkstjóri þeirra. En þegar ég hafði verið þarna í nokkra mánuði kom Lúðvík Hjálmtýsson vinur minn, sem átti ekki orð yfir að sjá mig, alvanan kokk og bryta, í verkamannavinnu. „Þetta er ekki hægt,“ sagði hann. „En erindi mitt við þig er það að við erum að setja á stofn nýtt Hótel Selfoss og ég vil fá þig þangað. „Nú, brann hótelið ekki?“ sagði ég. „Ekki veitingasalirn- ir,“ sagði Lúðvík. „Þama verður mik- ið að gera, komdu og líttu á þetta.“ Það gerði ég að sjálfsögðu og leist vel á. Með mér kom konan mín, Margrét Jónsdóttir, og gerðist hún bakari hjá mér. Þegar ég var á Esjunni á sínum tíma var hjá mér ágætis bryti, Elías Dagfinnsson. Hann kom til mín um hverja helgi með fullt af fólki í mat. En þegar ég held heim um haustið, hugðist hótelstjórinn fara að draga starfsemina saman á ýmsa lund, og það líkaði mér ekki. Ég sagði því upp og fór.“ Matreiðslumeistari á Keflavíkurflugvelli í 25 ár! „En alltaf vill manni eitthvað til. Ekki er ég fyrr kominn heim en Elías hringir til mín og segir að strák sem vann hjá honum í grillinu á Keflavík- urflugvelli hafi verið sagt upp — og biður mig að hlaupa í skarðið. Þetta var 1964. Ég lofaði að hjálpa honum en tók fram að ekki gæti ég hugsað mér andstyggilegra starf en að vera grillkokkur. En daginn eftir hringir hann og þá er fallinn úr skaftinu einn aðal vaktstjórinn á næturvaktinni. „Nú vil ég bjóða þér starfið,“ segir El- ías, „og þar færðu mikið hærra kaup en að vera kokkur. Þessu tók ég fegins hendi og var þar matreiðslumeistari í hvorki meira né minna en í 25 ár! Þá voru fæturnir hættir að bera mig og ég orðinn sjötíu og sjö ára, svo ekki var um annað að ræða en að hætta.“ Konan mín var sem áður segir Margrét Jónsdóttir, sem nú er látin fyrir sex árum. Við eignuðumst fjögur börn. Ég dvel hjá elstu dóttur minni Jónu, en sæki dagvistun á Hrafnistu í Hafnarfirði og þar er gott að vera. Ég hugsa með þökk til allra gamalla skipsfélaga frá þessum tíma, því þeir voru nær allir sómamenn, þótt alltaf leynist svartur sauður innan um.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.