Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Side 10
10
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Tvöfalt merkisafmæli
Bæði Hrafnistuheimilin fagna merkum tímamótum í ár, þar sem Hrafnista í
Reykjavík er nú 40 ára en Hrafnista í Hafnarfirði 20 ára. í tilefni af þessum tíma-
mótum tók Sjómannadagsblaðið Rafn Sigurðsson forstjóra tali
Rafn Sigurðsson forstjóri: “Hér ber allt vott um snyrtimennsku, þrifnað og hlý-
legheit, og það þakka ég einkum okkar ágæta starfsfólki." (Ljósm. Sjmdbl.
Björn Pálsson)
s
I ár vill svo til að bæði Hrafnistuheimilin fagna
merkisafmælum, en Hrafnista í Laugarási er 40 ára á
þessu ári en Hrafnista í Hafnarfirði 20 ára. Horn-
steinninn að Hrafnistu í Reykjavík var lagður á Sjó-
mannadaginn þann 13. júní 1954 af þáverandi forseta
Islands, Asgeiri Asgeirssyni, en starfsemin hófst á Sjó-
mannadaginn þann 2. júní 1957. Það var svo á árunum
1974-75 að hafist var handa við undirbúning byggingu
Hrafnistu í Hafnarfirði og hornsteinninn að bygging-
unni var lagður af þáverandi sjávarútvegsráðherra,
Matthíasi Bjarnasyni, á Sjómannadaginn 5. júní 1977.
Heimilið tók svo til stafa 19. nóvember sama ár. í til-
efni af þessum tímamótum fann Sjómannadagsblaðið
Rafn Sigurðsson forstjóra heimilanna að máli og innti
hann eftir hvað honum væri efst í huga á þessu afmæl-
isári.
“Já, það er rétt að þetta glæsilega
og myndarlega heimili, Hrafnista í
Laugarásnum, sem byggt var af fram-
sýni og dugnaði sjómannastéttarinnar,
fagnar 40 ára afmæli sínu nú í ár,”
segir Rafn Sigurðsson. “Fyrsti for-
stjóri heimilisins var Sigurjón Einars-
son og við af honum tók Auðun Her-
mannsson. Sjálfur varð ég svo for-
stjóri heimilisins 1. ágúst 1973, en
með þeirri hagræðingarstefnu sem
allsráðandi varð um 1993, tók ég við
sem forstjóri beggja heimilanna það
ár, og var það í samræmi við þann
ásetning okkar að byrja á að “spara
ofan frá,” eins og sagt er. Fram til
þess tíma hafði Guðmundur Hall-
varðsson alþingismaður og núverandi
formaður Sjómannadagsráðs veitt
heimilinu forstöðu um skeið.”
Á Hrafnistu í Reykjavík búa
nú 316 manns
“Þessar byggingar eru merkilegar
að því leyti að þeir menn sem hófu
hér framkvæmdir gerðu sér ljóst að
undir sama þaki þurfti að vera bæði
svokallað dvalarheimili og svo hjúkr-
unardeildir. Þannig er á Hrafnistu í
Reykjavík dvalarheimili fyrir um 200
manns og fimm hjúkrunardeildir fyrir
um 100 manns. Þannig að 1997 eru á
Dvalarheimili aldraðra sjómanna í
Reykjavík alls um 316 manns. Síðan
byggðum við hjónagarð, þar sem 18
hjón gátu búið, en þessi aðstaða var
með þeim hætti að hjónin gátu sótt
alla þjónustu, mat sem annað, upp á
Hrafnistu. Þetta voru síðustu bygg-
ingar á lóð Hrafnistu í Reykjavík um
árabil, en síðar voru byggð raðhús og
loks blokk sem síðan tengdust þjón-