Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Page 11
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
11
Hrafnista í Reykjavík. Þar, sem á Hrafnistu í Hafiiaifirði, verður boðið upp á ókeypis veitingar á Sjómannadaginn.
(Ljósm. Sjómdbl. Björn Pálsson)
ustukerfi Hrafnistu. Þetta hefur reynst
mjög þægilegt — hérna geta aldraðir
búið ýmist í raðhúsi eða í blokk, eftir
því sem fjárhagur og vilji er fyrir
hendi og alla þjónustu getur fólkið
sótt inn á heimilið. Og nú síðast ber
svo að telja sundlaugina og endurhæf-
ingarstöðina sem ítarlega er greint frá
hér í blaðinu. Það verður væntanlega
síðasta byggingarframkvæmdin við
Hrafnistu í Laugarási.”
40 ára þróun byggð á reynslu
“En eins og að ofan segir fagnar
Hrafnista í Hafnarfirði einnig merkis-
afmæli á árinu, þar sem hún er nú orð-
in 20 ára. Svo háttaði til að ég sat í
bygginganefnd þess heimilis ásamt
þeim Pétri Sigurðssyni og Óskari Vig-
fússyni. Ég minnist þess að hönnuður
að fyrri hluta eða A-byggingu heimil-
isins var Bjami Marteinsson arkitekt.
En I982 var svo byrjað að byggja
hjúkrunardeildirnar ásamt sundlaug
og ýmsum þjónustuhlutum öðrum. Til
þess að teikna þær viðbætur var feng-
inn ungur maður sem hefur unnið
mesta eða alla teiknivinnu fyrir Sjó-
mannadaginn hin síðari árin, Halldór
Guðmundsson arkitekt. En sá maður
sem hafði mestan veg og vanda af
byggingu Hrafnistu í Hafnarfirði
hvað tekjuöflun snerti og fram-
kvæmdir var þáverandi formaður Sjó-
mannadagsráðs, Pétur Sigurðsson,
sem síðar varð svo forstjóri heimilis-
ins.
Það sem ég vil fyrst minnast á í til-
efni af þessum tímamótum í sögu
þessara tveggja heimila er það hve
frábærlega okkur hefur tekist til með
starfsfólk. Bæði þessi heimili okkar
hafa verið annáluð fyrir snyrti-
mennsku, þrifnað og hlýlegheit. Fólk
sem hefur komið til okkar hefur jafn-
an dáðst að þessu og ber það ljósastan
vott um það hverju okkar ágæta
starfsfólk hefur fengið til leiðar kom-
ið.
Hér er um að ræða þróun sem stað-
ið hefur í 40 ár og hefur verið ákaf-
lega ánægjulegt og skemmtilegt að
fylgjast með henni. Þannig má segja
að þegar Hrafnista í Hafnarfirði var
reist hafi við bygginguna verið yfir-
færð sú reynsla sem fengist hafði af
Hrafnistu í Reykjavík. Við Hrafnistu í
Hafnarfirði er dagvist, eða
“Dægradvöl,” eins og við köllum það,
og einnig erum við með svonefnda
“orlofsdvöl,” en þar er um að ræða
átta herbergi, sem ætluð eru til þess að
fólk geti dvalist þar í einn mánuð og
síðan snúið heim á ný. Því miður hef-
ur þetta ekki gengið til eins og upp-
haflega var ætlað, þar sem þetta fólk
hefur margt ílengst hjá okkur. En
vafalaust mun í framtíðinni verða séð
svo til að þetta standi til boða og virki
eins og til er ætlast, þegar heimilin
stækka. Síðan er að nefna dvalar-
heimilið sjálft sem samkvæmt lögum
kallast þjónustuaðstaða og þar eru
rúmlega hundrað manns — allir í ein-
býlisherbergjum. Einnig þrjár hjúkr-
unardeildir og er einni hæðinni skipt í
tvennt: I öðrum hlutanum eru
alzheimersjúklingar og köllum við þá
deild “Hlífð.” Þarna er um nokkurt
nýmæli að ræða og hefur gefist ákaf-
lega vel, sem sýnir að enn höfum við
gerst framúrstefnuaðilar í málefnum
aldraðra á íslandi.”
Hjúkrunarálma fyrir 90
manns og stækkun herbergja
á Hrafnistu í Laugarásnum
“Það hefur lengi verið draumur
okkar að byggja við Hrafnistu í Hafn-
arfirði nýja hjúkrunarálmu fyrir 90
manns. Við erum þegar í stakk búnir