Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Page 81

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Page 81
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 81 um, en öðrum var komið fyrir frammi í hjá skipverjum. Nú má minnast þess að húsakynni manna í landi voru í þá daga ekkert lík því sem þau eru nú orðin, oft ekki mikið rýmri en í Svan- inum og síst íburðarmeiri. I skipinu var þó allt málað og gluggaumgjörð og hurðarhúnar úr kopar og alltaf gljáfægt og pússað. Farþegum flest- um hefur því þótt vistarverurnar full- góðar um borð. En fátt hefur verið til dægrastyttingar ofan þilja, þegar vont var veður. Og ekki er víst að skipin sem sigldu á aðrar hafnir landsins hafi boðið upp á meiri makindi en Svanur- inn. Það var líka algengt að menn yrðu af ferðast í fjarlæga landsfjórð- unga til þess að komast í skip. Öld „þægindanna" var þá ekki upp runnin. — eða ætli menn hafi ekki þóst njóta allra hugsanlegra þæginda þegar þeir voru komnir út í þessa fljótandi kast- ala eins og Svaninn og hans líka — ef nokkrir voru.“ „Aldrei bar göfugri gest að Iandi“ „Aldrei bar göfugri gest að landi í Ólafsvík en Svaninn. Honum tókst vel “landtakan“ og stóð heill og tígu- legur í fjörunni. Allir skipsmenn komust heilir á land og fram að þessu höfðu aldrei hlotist meiðsli eða mann- skaði af þegar skipin strönduðu. Eng- um kom til hugar að honum yrði kom- ið á flot aftur. Hans hlutverki var lok- ið hvað sem honum varð að aldurtila, hvort það var heldur norðangarrinn eða elli eða eðlileg hrörnun. Getur verið að hann hafi þótt eiga hvíldina skilið og viljandi verið hlíft við ferða- volkinu framvegis. Þó Svanurinn væri kominn til ára sinna var það enginn hægðarleikur að veita honum hina síðustu þjónustu: að reita af honum segl og reiða, fella möstur, flá utan af honum koparhúðina, sundra skrokkn- um og ganga svo frá öllu að ekkert væri eftir nema sléttur sandurinn — tilbúinn að taka á móti næsta skipi!“ Vandað hefur verið til smíðarinnar „Svanurinn var ákaflega mikið eirseymdur og ég man eftir stórum hrúgum af eirnöglum sem söfnuðust fyrir eftir því sem skrokkurinn var rif- inn. Eg er viss um að sumir naglarnir hafa verið álnarlangir og um það var talað að erfitt væri að draga þá út úr eikarplönkunum og þéttsettum eikar- böndum. En hvernig í ósköpunum Ólsararnir fengu unnið það stórvirki að pilla skipið í smáparta, ögn fyrir ögn, hafandi ekkert í höndunum ann- að- en járnkarlinn og sleggjuna — það er lítt skiljanlegt nú á vélanna og tækninnar tímum. En allt var þetta gert og innan skamms sáust þess lítil merki að hinn víðfrægi Svanur, kóngshöndlunarskipið og árlegur aufúsugestur í meira en hundrað ár, hefði nokkru sinni til Ólafsvíkur kom- ið. Að síðustu var svo haldið stranduppboð á reytunum og ögnun- um dreift eins og særoki um plássið og nálægar sveitir. Ekki man ég eftir því að sýslumaður væri þar viðstadd- ur.... Svanurinn var kominn veg allrar veraldar og lifði í þakklátri endur- minningu þeirrar kynslóðar sem notið hafði aðdráttar hans. Og víst var um það að Svansins var saknað og sökn- uðurinn og sorgin var engin uppgerð, enda var missirinn mikill og þar áttu Ólsarar á bak að sjá tryggum vini og hjálparhellu í meir en hundrað ár.“ Stórkostlegur leikvangur! „En við unglingarnir vorum enn ókunnugir alvöru lífsins og sáum á hinn bóginn að þar hafði borist upp í fangið á okkur svo tilvalinn, dásam- legur og stórkostlegur leikvangur að það var ekki furða þótt einhverju yrði að fórna til þess að slíkt gæti skeð. Það var skiljanlegt að fullorðna fólk- inu þætti mikið fyrir, en hin uppvax- andi kynslóð var ánægð og lifði sínar skemmtilegustu stundir þann stutta tíma sem Svanurinn lá í sandinum óskemmdur af manna völdum. Tvö himingnæfandi siglutré með tilheyr- andi rám og reiða, og bugspjótið með öllum sínum köðlum og strengjum — það var himnaríkis sæluvist að klifra og byltast í ærslum og loftköstum um alla þá heima, jafnt í forboði, sem al- gengast var, og með sjálfteknu leyfi í trássi við bann og skipanir, enda vant- aði framkvæmdavaldið, eins og stundum ber við. Ekki man ég hve lengi við vorum í þeirri paradís, en eftir nokkrar vikur voru möstrin fall- in, reiði slitinn og kubbaður, viðir klofnir og sundraðir, allt eyðilagt og borið í hrúgur upp á kamp og beið þar eftir uppboði og því næst tvístrun og loks gleymsku..." Hér látum við frásögninni af Ólafs- víkur-Svaninum lokið en ekki munu mörg skip merkari hafa siglt hingað til lands. Sendum öLlum sjómönnum árnaðaróskír á fiátídisdcgi þeirra Sjómannasamband Islands Borgartúni 18,105 Reykjavík
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.