Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Side 94
94
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Hátíðarhöld Sjómannadagsins
í Hafnarfirði 1996
Blómsveigur lagður að minnismerki um horfna sjómenn: F.v. Karel Karelsson,
Sigþrúður Jónsdóttir sem lagði sveiginn og séra Sigurður Guðmundsson sem
flutti bœn.
Frá vinstri: Jón Júlíusson, Þorvarður S. Guðmundsson, Svanhildur Sigurjóns-
dóttir, Ingiberg Halldórsson, Jórunn Hadda Egilsdótttir, Vilborg Harðardóttir
og Rósmundur Sigurðsson. Helgi Einarsson heiðraði.
Dagskrá Sjómannadagsins hófst
laugardaginn 1. júní kl. 16.00 með
knattspyrnukeppni frystitogara. Það
var leiðindaveður, stífur norðan-
strengur og kalt. Ahorfendur voru því
færri en búast mátti við, en fjölmargir
sátu inni í bílum sínum og þeyttu
flautuna þegar það átti við eða rétt lið
gerði góða hluti.
Þrátt fyrir kuldann og vindinn spil-
uðu liðin góðan bolta og sýndu mikið
keppnisskap. Röð liða varð þessi:
1. RÁN
2. HARALDUR KRISTJÁNSSON
3. ÝMIR
4. VENUS
Sunnudaginn 2. júní voru fánar
dregnir að húni kl. 8.00 og kl. 10.00
hóf Lúðrasveit Hafnarfjarðar að leika
við Hrafnistu. Kl. 10.45 var lagður
blómsveigur að minnisvarða um
horfna sjómenn við Víðistaðakirkju.
Það gerði Sigþrúður Jónsdóttir og Sr.
Sigurður Guðmundsson flutti bæn.
Gengið var til kirkju og hlýtt á messu
hjá séra Sigurði. Lesarar ritningar-
greina við messuna voru þau Jórunn
Hadda Egilsdóttir og Bergþór Ingi-
bergsson.
Kl. 13.00 var skemmtisigling með
börn og fullorðna fram á fjörðinn í
umsjón Björgunarsveitar Fiskakletts.
Kl. 14.00 hófst hátíðardagskrá Sjó-
mannadagsins framan við Tónlistar-
skólann með leik Lúðrasveitar Hafn-
arfjarðar. Karel Karelsson formaður
Sjómannadagsins í Hafnarfirði setti
hátíðina og kynnir var Guðmundur
Jónsson skipstjóri á Venusi.
Ávörp fluttu:
Kristín Sveinbjarnardóttir formað-
ur Slysavarnadeildarinnar Hraun-
prýði, Guðmundur Svavarsson full-
trúi Útvegsmannafélags Hafnarfjarð-
ar og Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannafélags Hafnarfjarðar.
Fjórir aldraðir sjómenn voru
heiðraðir að þessu sinni. Þeir Rós-
mundur Sigurðsson, Ingiberg Hall-
dórsson, Jón Júlíusson og Þorvarður