Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 11
5
friðar tekið öll þeirra börn, sjö alls að tölu, þ& leizt
þeim að kalla heim til sín þennan sinn dótturson,
Þórð Daðason, þá fimm vetra gamlan, frá Runa, til
að ættleiða hann að lögum til alls, sem þau áttu og
eigandi yrðu, hvað og svo skeði og fram fór, að bisk-
upinn ættleiddi hann til sinna eigna og arfa með sam-
þykki bræðra siuna og erfingja þriggja vestur í Holti
i Önundarfirði, en Margrét HalLdórsdóttir, að ráði bisk-
upsins og samþykki sinna tveggja bræðra, ættleiddi
hann til allra sinna eigna og arfa hér í Skálholti, sem
gerningsbréf þar um hvort um sig gert og vottað gerla
útvisar, hvar upp á síðan íékkst og ntgafst kongl.
Majst. Driderici tertii, blessaðrar minningar, staðfest-
ingarbréf fyrir gunst og velvild vors háeðla Lénsherra
Rigens Admirals Hr. HenderichBielkes, en undirrétting
og meðalgöngu vors ærlega landsfógeta Jóhanns Pét-
urssonar Klein, lénsherrans fullmegtugs yfir íslandi,
hvað guð almáttugur bezt einum og sérhverjum í sinn
stað og ráð með náð og blessan betali og betalað
hafi. Pramar útgaf hans kongl. Majst. Priderich þriðji
fyrir góðvild og meðalgöngu herr AdmiraLens, velnefnds
lénsherra, af sérdeilis gúnst og náð uppreisnar- og
restitutionisbréf Ragnheiði Brynjólfsdóttur, að hún
fyrir sitt ungdómsbrot og óframsýni skyldi að öngvu
firrnari vera, hvorki uppá rykti né ráðahag, skyldi
bans auðið verða, hvað biskupinn óskar, að almáttugur
guð allra bezt, bæði við hans kongl. Maj.st og svo í
sinn stað hana háeðla Excellence með allri náð og bless-
an minnzt hafi og minnist. Svo staðfestist sú ættleið-
ing Þórðar, bæði til biskupsius og hans móðurmóður
eigna, i öllum sínum greinum og articulis, sem tilakil-
ið var og bréf upp á gert, og líka áður samþykkt af
föðurfrændum Þórðar með þeirra opnu bréfi og þeirra
eigin handskriptum við votta undirsettum. Tóku þau
nú hann því að sér í sonarstað biskupinn M. Bryn-