Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 298
290
eptirlátur og atundaði hans til banadægurs. Oddriitt
dó litlu eptir barnburðinn. Seinast flutti £>órarinn sig
að Skarðskoti í Leirársveit og þar dó hanu. Fór þá
Sveinn til amtmanns Magnúsar Gíslasonar. t>ar giptist
hann eptir 15 ára veru1 2) og eignaðist ráðskonuna I>ór-
dísi Oddsdóttur Einarssonar frá Stóra-Lambhaga i Skil-
mannahrepp, eptir 6 ára vistarveru hennar. Eptir sögn
var Oddur í Lambhaga*) kominn af ætt Odds biskups
Einarssonar, og uppalinn hjá Jóni Vigfússyni biskupi,
þá á Leirá, og sonum hans. — Sveinn Þórðarson, hvers
áðnr er getið, reisti bú í Skarðskoti. Var hann kall-
aður mikið efnaður, en hatði þó aldrei nema 80 álna
kaup, sera þá gekkst jafnast við, þvi hundraðskaupið
halði þá ei stað, nema fyrir ráðsmenn eða smiði.
Vetrartjármenn áttu það og, en samningurinn milli
amtmannsins og Sveins var svo gerður. Sveinn átti fl
ær, þegar hann skildi við fóstra sinn, en hann var
vanur tjárgeyraslu á vetrardegi, og var það þó enginn
hægðarleikur, því ekkert hey var ætlað rosknu fé, og
ekkert hús, nema þær svo kölluðu fjárborgir á stöku
stórbæjura, sem þó voru í högunum einhversstaðar,
máske langt frá bezta hagaplássinu, þvi fénu var ætlað
að hrekjast þangað í stórbyljum. Þær voru svo gerðar,
að kringlóttur var botninn, og svo stórar, að rúmuðu
5—6 hundruð fjár, hlaðnar úr flötum veggjahnausuin,
hér um bil tveggja álna hæð lóðrétt, en þar eptir
dróguit þær að sér, svo þær urðu nálægt 6—7 álnuni
1) Það hefur verið árin 1748—1763, sem Sveinn hefur
verið á Leirú hjá amtmanni, fremur en 1751—1766.
2) Oddur býr í Gultarholti 1756. Framætt hans er ekki
kunn. Að hann hafi verið kominn af Oddi biskupi er vit-
anlegn getgáta höf., alveg út í loptið. Það nær auðvitað
engri útt, að hann hafi verið alinn upp hjá Jóni biskupi
Vigfússyni ú Leirá (um 1680), en hjá Guðríði ekkju hans eða
Vigfúsi syni þeirraff 1726) gat hann hafa verið í æsku.