Blanda - 01.01.1923, Page 405
397
en þá hafði Torfi verið eitt missiri hreppstjóri, er faðir
hans andaðist 1845, er hann hafði tvo vetur um
nirætt. Erfði Torfi þá Kleiía, óbýlisjörð sína, og
Bóistað í Selárdal, og síðan fór það fram, sem áður
er talið, um skipasmíð og annað.
Þar er nú til að taka, að Torfi var með Skrauta,
skip sitt, á Gjögri 1847, og reru nú Gjögrarar þriðja
dag páska, hinn 61). Apríl. Torfi reri Skrauta, skipi
sinu, og haíði ærið vel mannað; voru þessir hásetar
hans : Jón Jónsson frá Bassastöðum, Guðmundur Svoins-
son á Kleifum, og Björn bróðir hans á Eyjum, —
voru þeir systrungar Torfa, — Ólafur Ólafsson á Bakka^
Sveinn Kristjánssou á Stað, Þorkell Þorkelsson á
Bólstað og Arni Jónsson á Kaldrananesi. Yeðri var
svo farið, að nóttina áður hafði birt upp með
norðangarð, — er Strendir kalla og margir sjómenn
vestra og nyrðra, — og var heiðríkt veður og brim
nokkuð. Bjarni Ásgeirsson reri fyrstur, og svo hver
af öðrum. En er síðustu skipin voru róin, gekk út-
synningsblika yfir þvert lopt. Hvesti þá suðvestan
mjög með kafaidi, en það er beint leiði frá Rifakerjum
til miða. Byrgði þá landið, er komið var til grunn-
miða. Sigldu þá áttæringarnir, þar til komið var hér
um 5 vikur undan landi, og iögðust þar. Harðnaðiþá
veðrið, svo rok var á fjörðinn og með fjöllum, og urðu
eigi vaðir niðri hafðir, og bannaði Torfi það mönnum
sínum, og kallaði til þess eins, að þeir vætti sig, ef
eitthvað kynni við að koma. Nú tók að birta kafaldið,
en veðrið var fullharðnað, og hélzt það frá þriðjudags
kvöldi til fimtudags morguns2); hægði þá, og gerði
logn að mestu. Vissi Torfi þá ekki til annara skipa,
nema Bjarna Ásgeirssonar. Lá hann skamt frá honum,
og þann dag fóru þeir að fiska.
1) 13da, lidr.
2) þ. e. 6.-8. Apr.