Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 153
ekki síðar en um 1770, eða skömrnu eptir drukknan Egg-
erts. Eru mér nú kunnar að eins 3 afskriptir þeirra. Hin
elzta, sem lögð hefur verið lil grundvallar við prent-
unina, merkt hér A, er í Lbs. 413 4to, rituð 1777
með fallegri fljótaskriptarhendi, áð líkindum af lærðum
manni. Samkynja afskript þessari, og litlu yngri, en með
viðvaningslegri hendi, er i safni Bókmentafélagsins, við-
nuka A nr. 67 i prentuðu handritaskránni (I, bls. 229)
(merkt V, 16 i safninu). Þessi afskript (í 4to) er hér
merkt B. Eru þar allviða lakari leshættir en í A og öll
meðferð efnisins óskjallegri yfirleitt. í þessu sama hand-
riti er einnig Timaspegill, ortur af Árna 1767, einskonar
tíðavisur frá árinu 1766 um erlend og innlend tiðindi
(vantar eitt blað i) og aptan við brot (á einu blaði) um
samskonar efni árin 1765—1766, liklega einnig ort af
Árna, og eru þessi ljóðmæli hin einu, sem mér eru kunn
eptir þennan höfund, auk fyrtéðra rímna. Þriðja og
langyngsta afskript rimnanna er i safni Jóns Sigurðsson-
ar 358 4to í Landsbókasafninu, hér merkt C, rituð um
1858 af Matthiasi Ásgeirssyni (prófasts i Holti í Önundar-
firði Jónssonar) líklega eptir afskript, er stafað hefur frá
séra Þórarni Jónssyni á Myrká (siðar i Múla -j- 1816), því
að hann hefur ort lof um rímurnar í 4 viðaukaerindum
aptan við þær, er gefur til kynna, að hann hafi annað-
hvort sjálfur tekið afskript af þeim, eða einhver honura
kunnugur, er bætt hefur þessum erindum hans aptan við,
°g eru þau nú að eins í þessari afskript Matthíasar, en
ekki í hinum tveimur. Þessi afskript er nokkuð með öðru
sniði en hinar, og allfrábrugðin þeim á ýmsan hátt, svo
að manni gæti doltið f hug, að rímurnar hafi verið „lag-
*œrðar“ af einhverjum, því að mismuninum er svo háttað,
Hð hann getur ekki eingöngu af mislestri stafað. Þess má
geta, að afskript þessi hefur 2 erindi umfram (38. og 80.
erindið í siðari rímunni) og 1 erindi (93. í sömu rímu)
sem að vísu er í B. en ekki í A. Þorvaldur Thoroddsen
(Landfræðissaga III, 42) nefnir aðeins titilinn á þessari
Jngstu rimnaafskript, hefur liklega ekki þekkt hinar. — Eins
°g segir i rímunum sjálfum eru þær ortar sainkvæmt
10*