Eimreiðin - 01.07.1928, Qupperneq 25
eimreiðin
QÁTA GEVMSINS
217
kvæmninnar. Hringurinn, hnaitmyndunin eru opinberanir hins
eilífa lögmáls, að öðlast sem mest, með minstri eyðslu, eins
og t. d. Wagner gerir, þar sem hann nær fleiri hljómstillum
á þröngum tónsvæðum en víðspennur annara tónsmiða. Dásemd
hins ósvikna norræna stíls og brags flytur óteljandi máttuga
vitnisburði hins sama.
En svo ég víki að hinu öðru meginatriði þessarar smá-
greinar, takmörkun geymsins, vil ég fyrst minnast þess, að
vér stöndum þar á bjargi rökréttrar mannlegrar hugsunar. Hér
er ekki að ræða um neina hliðsjón af rannsóknum vísinda-
stofnana. Hér talar mannlegur andi og stefnir eftir vitabálum
algengrar skynsemi.
Eg lít svo á, að engum sé það um megn að fullskilja það
eitt út af fyrir sig, að þar sem engin hugsun kemst að, þar
hjaðnar öll tilvist og hverfur frá mannlegum anda. Ef vér
nú ennfremur höldum því föstu, í sama sambandi, að sjálfur
lífsþróttur mannsins og þekkingarþrá hugsar ekki til óþrotlegra
fjarlægða, virðist svo sem vitverur alheims muni eiga að geta
9ert áreið á landamæri sköpunar og óskapnaðs; en þar talar og
norræn tunga enn hátt yfir öll önnur tákn mannshyggjunnar.
A frumleiðum jarðneskra hugsjóna um slík efni hafa ýmisleg
nöfn og heiti náð festu. Einkennilegt er það, að hin algenga
fáknun, samstofna í grísku (Chaos) og norrænu (Gap) eru
hvorttveggja málsmyndir um tómleika, auðn. Hinar miklu afl-
raunir andans virðast örmagnast af því, að hér eiga þær
e^kert viðfangsefni. Og vér verðum enn að láta oss nægja
að leiða nokkur rök að því, hvernig alheimur himinlíkamanna
stendur gagnvart almennri meðvitund hugsandi nemenda í
skóla lífsins.
^er vitum að tvenn meginöfl reka vél hnattaheims, að-
sækni og miðflótti. Vfirborð þes&arar viðureignar er alhvíld
abbathkyrðin). Þetta logn truflast aldrei, af því að heild al-
9eYnisins sækir ekki að neinu marki. En engar ómælisfirðir
2eIa látið nokkurt minsta hrapandi sandkorn alrýmisins óháð
rattarmagninu mikla. Það er einungis innan vébanda himna--
ertisins, að þessi meginlög eiga gildi. Fyrir utan hnattaver-
0 er ekkert til, og þess vegna stendur heild algeymsins
9rafkyr.