Eimreiðin - 01.10.1931, Side 48
360
WILLARD FISKE
EIMREIÐlN
og vann lengstum að ritstjórnarstörfum fram til sumarsins
1867. Þá um haustið og fram á næsta sumar ferðaðist hann
um Egyptaland og Gyðingaland og enn víðar; en meðan
hann var í þeirri för var hann kjörinn prófessor í Norður-
landamálum og þýzku, og jafnframt yfirbókavörður við Cornell-
háskóla, sem þá var nýstofnaður. Hóf Fiske starf sitt þar
snemma vetrar 1868 og gegndi þeim embættum fram til 1883.
Sumarið 1880 kvæntist Fiske ágætiskonunni Miss ]ennie
McGraw, frá Ithaca (bæ þeim, sem Cornell-háskóli er 0i
en hún dó rúmu ári síðar, og var það Fiske þungur harmur.
Frú Fiske var kona stórauðug, og erfði maður hennar all-
mikið af eignum hennar. Þá er hann hafði sagt af sér em*
bættunum við Cornell (1883), settist hann að í Florenz o3
átti þar heima til dauðadags. V/ann hann kappsamlega að
söfnun bóka og að ritstörfum, eftir því sem heilsa hans leyfði;
en oft var hann á ferðalögum.
Fiske andaðist 17. september 1904 í Frankfurt am Main
á Þýzkalandi; var hann þar á ferð. Hann er grafinn við hlið
konu sinnar í kapellu Cornell-háskóla, þeirrar stofnunar, sem
hann unni heitt og auðgaði með ávaxtasömu starfi sínu og
stórgjöfum. Verður nafn hans tengt við háskólann, meðan þar
stendur steinn yfir steini.
II.
Þó stiklað hafi aðeins verið á stærstu steinum í athafna-
lífi Fiskes, er það auðsætt, að hann kom víða við sögu. H>n
margbreyttu störf hans eru talandi vottur fjölhæfni hans o3
elju. Hann var bersýnilega meir en meðalmaður.
Ritstjórasessinn skipaði hann með sæmd; enda var hann
fjölmentaður, víðsýnn, áhugasamur um opinber mál, djarf*
mæltur og prýðisvel ritfær. Bráðsnjöll er t. d. ritstjórnargrH0
hans um morð Lincolns Bandaríkjaforseta; mælska og djúP
tilfinning haldast þar í hendur; var grein þessi víða prentuð
og vinsæl mjög. Og Fiske ritaði ávalt öðruhvoru, að segia
má fram til hinztu stundar, tímarita- og blaðagreinar um þaU
mál, sem honum lágu á hjarta. Hann var einnig einn hinn
fyrsti amerískra háskólakennara, sem fræðslu veitti í blaða-
mensku. Cornell-háskóla var hann mjög þarfur maður með