Eimreiðin - 01.07.1941, Síða 116
340
ÓSÝNILEG ÁHRIFAÖFL
eimbbiðin
ar skynsamlegar skýringar á
þessari heimskulegu breytni
okkar, og við höldum, að við
séum frjáls gerða okkar. En
það er rangt. Við erum undir
áhrifum, eins og dáleiddir
menn, og leggjum rangan
skilning í, hvað frelsi og frí-
vilji er, sem aftur sýnir vel
hve vilji okkar er máttvana.
Eins og heimspekingurinn
Spinoza sagði, er hugmyndin
um frívilja ekkert annað en
blekkjandi vanþekking á or-
sökunum að vali okkar. Og
hversu satt reynist þetta ein-
mitt oft og einatt í öllu lífi
okkar! Hugsunin um það, að
við hefðum getað breytt öðru-
vísi en við gerðum, sýnir
hvorki né sannar, að maður sé
gæddur frívilja. Ég hef til
dæmis nokkrum sinnum dá-
leitt lækna, sem voru þess full-
vissir eftir á, að þeir hefðu
getað opnað augun, þegar ég
skipaði þeim að hafa þau aft-
ur. Þeir sögðust bara ekki
hafa kært sig um að opna þau.
Þeir ásettu sér svo að opna
þau næst, er ég gerði á þeim
sönm tilraun, en allt fór á
sömu leið. Þeir opnuðu ekki
augun. Eftir minum skilningi
er þetta sönnun þess, að frí-
vilji er enginn til. Hins vegar
er það augljóst mál, að marg-
falt meira gætir þess, hvað
maður er öðrum háður í dá-
leiðslu en vöku, en jafnfranit
getur dávaldurinn stórkost-
lega styrkt vilja hins dáleidda
og' orðið honum til blessunar
og bóta á mörgum sinnum á-
hrifameiri hátt en unnt er i
vöku.
Aðstoðarmenn okkar, þeiv
er hlustað höfðu á viðræðurn-
ar, voru nú víst farnir að
halda, að við værum einhverj-
ar yfirnáttúrlegar verur, og
kom nú einn þeirra með Þa
uppástungu, að við skyldum
dáleiða sig. Við féllumst a
þetta, og dáleiddi meistarinn
hann, en aðeins laust, svo að
hann myndi allt eftir á, sein
gerðist. Honum var nú sagt*
að eftir að hann valcnaðn
mundi hann draga hött á höf-
uð sér niður fyrir eyru, og vai’
hann látinn skrifa þessi fyrir-
mæli á pappírsblað. Síðan var
hann vakinn, blaðið fengið
honum samanbrotið og hon-
um sagt að líta ekki á það fýTr
en honum væri leyft það. Enn
freniur var honum sagt, að nu
mætti hann gera hvað sem
hann lysti og að hann væri al-
veg frjáls allra sinna gerða-
Samt sem áður framkvæmdr
hann fyrirmælin út í yztu &s'
ar og varð mjög hissa, er hann
leit á blaðið og sá þar, að hann
hafði einmitt framkvæmt það.