Eimreiðin - 01.07.1944, Blaðsíða 22
EIMREIÐIN
Við Þjóðveginn.
15. september 1944.
LÝÐVELDISHÁTlÐIN.
ísland hefur verið lýst lýðveldi. Sá mikilvægi atburður
gerðist að Þingvöllum laugardaginn 17. júní síðastl., eins og
öllum er kunnugt. Fyrsti forseti íslands, kosinn bann sama
dag að lögbergi, lilaut svo hjartanlegar móttökur mann-
fjöldans, sem hyllti hann að forsetakosningunni lokinni, að
engum gat dulizt vinsældir hans og það, að hefði hann verið
kjörinn með þjóðaratkvæðagreiðslu, mundu auðu seðlarnir
hafa orðið hlutfallslega færri en lijá hinu virðulega alþingi-
Opinber heimsókn forsetans um héruð landsins nú í ágúst
liefur enn staðfest þessar vinsældir hans meðal allra stétta
þjóðarinnar. Hún hefur á sinn hógláta hátt, en bó svo ein-
læglega opinskátt, látið í ljós fögnuð sinn og feginleik yfir
för hans sem sendiboða og merkisbera hins endurborna frelsis
Fjallkonunnar, lýðveldisins nýstofnaða, sem nú hefur hafið
göngu sína í fylgd frjálsra þjóða.
Fyrsta athöfnin, sem fram fór hinn 17. júní, var að leggja
blómsveig við fótstall styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli-
Þá athöfn framkvæmdi forseti sameinaðs alþingis, Gísli
Sveinsson, og síðan breiddi hinn fagri sveigur út blómskrúð
sitt við fótstallinn langa, Ijósa daga og nætur Jónsmessuskeiðs-
ins, féll eins og fagur gimsteinn inn í nýútsprungið blómaflos
vallarins, sem aldrei hefur verið eins gróðursæll og vel hirtur
og á þessu sólbjarta sumri: Táknræn mynd bess vaxtar, seni
Jón Sigurðsson sáði til með lífi sínu og starfi í þágu lands og
þjóðar.
„Fagna, ísland, fremstum hlyni
frama þíns, á nýrri öld.
Magna Jóni Sigurðssyni
sigurfull og þakkargjöld.“
Aldrei hefur þessari hvöt Hannesar Hafstein verið betitf
fylgt en meðan lýðveldisliátíðahöldin stóðu yfir. Hvarvetna