Eimreiðin - 01.07.1944, Blaðsíða 68
212
UNDRRAHEIMUR FRAMTÍÐARINNAR
EIMREIÐIN
til skemmtunar útvarpsflutning, fjarsýn, kvikmyndir, liljómplötur,
bækur og fréttir. Þetta tæki verður því sannnefnd töfrasjá, liylki
hennar úr skrautlegu, plastisku efni, sem samræmist vel öðrum
húsgögnum, og sjálf skráir liún fréttablað heimilisins, sýnir ljós-
myndir og teikningar, nýja viðburði, um leið og þeir gerast, skilar
útvarpsdagskrám þannig, að einn getur notið þeirra til fullnustu,
en annar lesið í næði rétt hjá, án þess að lieyra orð eða tón, og
verður því ekki fyrir neinum truflunum. Töfrasjá þessi getur
líka tekið við atburðum, meðan þeir gerast, og geymt þá þangað
til heimilisfólkið liefur tíma til að sjá þá eða lieyra, og liún getur
leikið lög og hljómkviður í 20 klukkutíma óslitið af svo fyrir-
ferðarlítilli mjófilmu, að vel má fela liana í lófa sínum.
FÖT t)R PAPPlR.
Föt verða búin til úr gerviefnum, og í stað klæðskeranna
koma risavaxnar klæðaframleiðsluvélar, sem skila fatnaðinuni
tilbúnum á örstuttum tíma. Skyrtur, sokkar og nærföt verða
skorin úr pappírskenndu efni, notuð aðeins einu sinni og þvl
næst fleygt. Skór verða búnir til úr gljúpu gerviefni í stað leðurs.
Klæðnaðir verða úr efni, sem líkist ull, en er gerviefni líl'1
,,celanese“ eða ofnu gervisilki. Saumar allir verða bræddir eða
límdir saman.og fötin gerð vatnsheld með ósýnilegu efni, seiu
gerir þau mjúk og voðfelld. Yfirhafnir verða hitaðar upp elllS
og liús, þegar kalt er, og einangraðar fyrir hita og kulda eftir vihl-
Þó að þessar spásagnir þyki ef til vill ýkjukenndar, er hér ekki
um annað að ræða en það,sem þegar er farið að nota. Þannig starfa
nú þúsundir flugmanna, sem klæðast rafhituðum flugbúninguua
á ferðum síniun urn liáloftin. Félag eitt í Bandaríkjunum fram-
leiðir saumalausa glófa úr gervisilki. Menn þekkja þegar ýnus
plastisk efni, sem hægt er að nota til þess að gera fatnað vatns-
heldan. Eitt þeirra er „koroseal“, sem liægt er að vefa inn í sokka
til þess að gera þá óslítandi í notkun.
1 stað leðurs, ullar, silkis og bómullar er farið að nota gervief111
í stórum stíl. Gervisilki hefur verið framleitt, sem er óþekkjanleg1
frá silki. Nylon, sem finnst ekki í náttúrunni nema í frumÖgnum
kola, lofts og vatns, er tekið að nota í æ stærra mæli í alls konai
fatnað. Hinir fegurstu vefnaðir hafa verið gerðir úr svo ólíklegu111
efnum sem súrmjólk, tréberki, baunum og gleri.