Eimreiðin - 01.07.1944, Page 80
224 ÖRLOG OG ENDURGJALD eimreiðin
og hún lauk orðunum, féll hún
í ómegin á gólfið.
Hún hafði fengið ákaft lieila-
áfall og lá lengi á spítala, en
þó töldu læknarnir, að liún
mundi ná sér, en þá um leið að
líkindum glata minninu um alla
þá hina liræðilegu reynslu, sem
liún hafði orðið fyrir á brúð-
kaupsferðinni.
Þannig lýkur frásögn hlaðs-
ins, og það þarf naumast að
taka frarn, að læknarnir gátu
enga skýringu gefið á fvrir-
brigðinu.
Fréttaritari blaðsins Az Est
staðhæfir, að atburður þessi
hafi gerzt nákvæmlega eins og
frá honum sé skýrt og sé „vott-
festur af áreiðanlegum heirn-
ildarmönnum, þess vegna skráð-
ur og birtur án athugasemda,
þar sem liann er talinn óyggj-
andi staðreynd, af öllum þeim,
sem liafa kynnzt honum og
rannsakað hann.“
I bókinni „Máttarvöldin“
lýsti ég tilraunum, sem ég hef
gert á dáleiddri konu; lét liana
rekja í dáleiðslunni liðið líf sitt
langt aftur í tímann. Árangur-
inn af þessum tilraunum er svo
athyglisverður, að mér finnst á-
stæða til þess að skýra hér einn-
ig frá sams konar tilraunum,
sent de Roclias ofursti gerði á
dáleiddum mönnum.
Ein þessara tilrauna, sem hr.
de Rochas gerði, var að láta
munaðarleysingja nokkurn, sem
hafði alizt upp í Beyrout og
átti að föður vélasmið einn frá
Austurlöndum, rekja líf sitt
aftur í tímann. Þessi munaðar-
lausa stúlka hélt því fram í dá-
leiðslunni, að liún ætti heima í
Marseilles, þegar henni var
sagt, að hún væri á 10 ára
skeiðinu. Ekki vissi de Roclias,
að hún liefði verið þar, þegar
hún var tíu ára, en svo reyndisl
þó. Átta ára var hún í Beyrout
og talaðj um föður sinn og vini,
sem kæmu í lieimsókn. Þegar
hún var spurð, livernig lieilsað
væri á tyrknesku, sagði liún
„salamalec“, en það orð mundi
hún 'ekki í vöku. Tveggja ára
var hún í Cuges á Frakklandi,
sem reyndist rétt, og eins árs
gat hún ekki lengur talað í dá-
leiðslunni, heldur svaraði með
bendingiun.
En það undarlegasta við
þessa tilraun de Rochas var
þetta: Til þess að flytja dá-
leiddu stúlkuna aftur í tímann
notaði liann langstrokur, til
þess að kalla hana aftur í nu-
tímann þverstrokur. En svo
uppgötvaði hann, að ef liann
notaði þverstrokurnar áfram,
fór dáleidda stúlkan fram nr
aldri sínum og gat séð sjálf®
sig í ókomna tímanum. Hei
verður þó vel að gæta þess, að