Eimreiðin - 01.10.1947, Síða 22
246
VESTUR-ÍSLENZK MENNING
eimreiðin
Þetta er ekki nema að sumu leyti satt, og er liægt að benda
á mörg dæmi, sem má hafa til hliðsjónar, ef þessi staðhæfing er
frekar íhuguð.
Skotar hafa verið partur af brezku þjóðinni síðan árið 1603.
Þeir hafa lagt fram sinn fullan skerf til allra menningar- og vel*
megunarmála þjóðarinnar, og hafa þeir oft, ef fólksfjöldi er tek-
inn til greina, staðið þeim ensku framar. Föðurlandið hefur yfif
þrjár aldir verið aðeins partur af brezku eyjunum, og Skotar
hafa sem aðrir flutzt til nýlendnanna, sem nú eru frjálsar og
óháðar þjóðir, til Bandaríkjanna og annarra landa. Skoðanir eru
varla skiptar um það, að hvar sem Skotar liafa setzt að, þá hafa
þeir sett skozkan blæ á umhverfið, og hefur hann haldizt við,
þótt blóðið hafi blandazt. Þeir hafa gengið inn í þjóðstraumana,
en samt varðveitt eittlivað, sem ómögulegt er að lýsa nema að
segja, að það sé skozkt. Þeir hafa varðveitt skozka menningu innan
menningar þjóðarheildarinnar.
Svo er einnig hægt að sérgreina írska menning. Nú er suður-
parturinn af Irlandi óháð ríki. Heimaþjóðinni er afar annt um
að vernda allt, sem írskt er, og getur enginn láð henni það. Reynt
er jafnvel að lífga við gamalt og dautt tungumál. Að því leytJ
eru Irar svo miklu fátækari en Islendingar, sem eiga lifandi tungu»
en samt klassiska að eðli og húningi.
Um Ira má segja svipað og um Skota. Hvar sem þeir setjast
að, þá virðast þeir hverfa inn í þjóðfélagið, en samt má sjá margt
sérstakt í þeim og niðjum þeirra, sem helzt við ótrúlega vel.
Og svo má nefna Svía og Norðmenn. Árið 1937 héldu Svíar
þrjú hundruð ára afmæli sitt í Bandaríkjunum. Norðmenn hafa
verið hér næstum eins lengi. Hægt er að benda á margar bygg^jr’
þar sem Skandinava-andinn er enn mjög sterkur. Menning sU’
sem þetta fólk flutti með sér, er langt frá því að vera horfuL
jafnvel þótt tungurnar séu að gleymast og blóðið liafi þynnzt og
umhverfið valdið miklum breytingum.
Mér finnst hið sama eigi sér stað, livað Islendinga liér vestan
hafs snertir, og að sumu leyti miklu fremur. Þeir eiga svo hrein3
og tæra uppsprettulind, sem þeir geta sífellt svalað sér á. Her
er átt við íslenzkar erfðir. En þessar eignir eru og annað. Þær
geta verið einskonar vörn — vörn gegn óhollum áhrifum frá öðr