Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1947, Blaðsíða 30

Eimreiðin - 01.10.1947, Blaðsíða 30
254 BLAÐI FLETT EIMREIÐIN þessu lengur eftir. Hún þekkir ekki manninn, sem hún hefur búið með í sjö löng ár. — Yfir hverju ertu að kvarta? Þú hefur allt til alls, átt fallegt heimili, efnilegt barn og getur gert það, sem þér sýnist. Hann strýkur um hárið á henni með sömu hlutlausu snerting- unni og hann flettir blöðunum í hókinni sinni. — Væri ekki réttara fyrir okkur að skilja samvistum? Þetta er ekkert líf. — Hvað áttu við? Undrun og spurn er í augnaráðinu. — Skilja samvistir? Þú ættir að tala við lækni, Gerður, og fá eitthvert taugastyrkjandi meðal. Nei, hún þekkir ekki þennan mann. En hún þekkir annan mann, sem bíður eftir henni, albúinn að opna henni leið til lífs- ins. Hvers vegna hefur hún hikað svo lengi? Gerður gengur þvert yfir gólfið og opnar dyr inn í næsta herbergi. Lítið, hvítt rúm, skápur, borð, stóll og gömul leikföng í einu horninu. Ekki að gráta. Hún vill vera ung og falleg í kvöld. Þetta verður allt flutt í burtu í gamalt hús í hinum enda bæjarins. Gerður tekur slitur af óhreinni brúðu og kreistir það í hendinni, og tárin þrýsta fastar að. Hún gengur aftur inn í svefnherbergið og týnir saman skart- gripi og annað smádót í litla ferðatösku. Svo fer hún í nýjan, grænan kjól með bleikrauðu belti, greiðir fallega liðað, Ijóst hárið og málar varimar. Hún ber ferðatöskurnar fram í anddyrið. Þá getur hún beðið eftir bílnum á meðan þær eru sóttar. Hún rennir enn einu sinm augunum yfir þessar ríkmannlegu stofur og finnur, að hún muni ekki sakna neins. Klukkan er sex. Þá er Leifur áreiðanlega heima og vonast eftir henni. Hún hefur ekki séð hann í marga daga, og hann veit ekki neitt um, að í kvöld kemur hún alkomin. Hún ætlar ekki að segja honum það undir eins, heldur þykjast verða að flýta ser eins og alltaf áður. Hún ætlar jafnvel að kveðja hann, til þesS að fögnuðurinn verði enn meiri, svo mikill, að hún gleymi her- bergi með litlu, hvítu rúmi og gömlum leikföngum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.