Eimreiðin - 01.10.1947, Blaðsíða 92
316
RITSJÁ
EIMREIÐIN
hverju hafi verið sleppt úr handriti
hans, því í fyrri hluta bókarinnar er
þess getið, að síðar muni sagt frá
mönnum, sem hvergi eru nefndir.
Er þetta dálitið óviðkunnanlegt. —
Ég tel bókina hiklaust meðal betri
hóka um svipað efni, sem komið hafa
út á síðari árum.
Þorsteinn Jónsson.
UTBRIGÐI JARÐARINNAR. Eftir
Ólaf Jóh. SigurSsson. Rvík 1947.
(Helgafell).
ólafur Jóhann vann sér mikla og
maklcga frægð fyrir skáldsöguna
„Fjallið og drauminn“. Síðan hafa
komið út eftir hann tvö smásagnasöfn,
hæði góð; sumt í þeim snilld, en
«kkert lélegt. Hann er margorður,
teygir lopann stundum helzti mikið,
en mál og stíll með ágætum. Um
það verður ekki deilt, að hann er nú
þegar orðinn fremstur hinna yngri
skálda — og þau eldri mega gæta
að sínum scss!
„Litbrigði jarðarinnar" er heilsteypt
listaverk, ritað af tœrri og látlausri
snilld. Efnið er engin nýjung, um það
hafa skáld allra alda fjallað: ástir
sveins og meyjar. Og Ólafur gerir
engar nýjar, markverðar uppgötvanir,
brýtur engar nýjar og áður óþekktar
hrautir í þessari sögu. Samt er hún
snilldarverk, ný og fersk lýsing á
þessu margkunna fyrirbæri: ungri ást,
því Ólafur Jóhann er góðskáld, —
og getur orðið enn miklu meira
skáld, ef hann skortir ekki þrek og
áræði til að offra listagyðjunni lífi
sínu og varpa frá sér öllum öðrum
gæðum!
Kristmann GuSmundsson.
HALLGRÍMUR PÉTURSSON, ÆVI
HANS OG STARF, eftir Magnús Jóns-
son, prófessor, dr. theol, er nýlega út
komin hók í 2 bindum (Rvík 1947,
H.f. Leiftur), inikið rit og vandað að
öllum frágangi. Höf. liefur kennt
kirkjusögu og ritskýringu Nýjatesta-
mentisins í guðfræðideild Háskóla ís-
lands, og hafa báðar þessar fræðigrein-
ar komið honum að miklu haldi við
samningu þessa rits. Því fyrra bindið
er fyrst og fremst saga sálmaskáldsins
með kirkjusöguna í heild að bak-
grunni. En síðara bindið er fyrst og
frcmst inngangsfræði — og ritskýring
— að Pas8Íusálniunum.
Höf. fer sem varlegast í að kveða
upp nokkra fullnaðardóma um ævi
Hallgríms. Stunduin gefur þessi var-
kárni tilefni til mótsctninga. T. d. er
á einum stað gerð nokkur tilraun til
að færa rök að' því, að Hallgrímur
hafi aldrei verið holdsveikur. Síðar er
þó fallið frá því, og tilorðning Passíu-
sálmanna óbeinlínis eignuð því, að
Hallgrímur uppgötvar, að hann hafi
tekið holdsveikina (II, lils. 12).
Fyrsti kafli fyrra bindis, kaflinn um
öld Hallgríms, liefði mátt vera ítar-
legri, einkum nánar greint frá andleg-
um stefnum í nágrannalöndunuin um
það leyti, sem Hallgrímur dvelur er-
lendis. Vafalaust hefur hann drukkið
í sig andlega strauma í samtíð sinni
á því tímabili.
Höf hefur lagt mikla vinnu í þessa
bók, og ást lians á viðfangsefninu er
auðsæ. Bókinni fylgja um 30 niyndir.
Nokkrar prentvillur liafa slæðst inn >
lesmálið, þó fáar bagalegar.
Með þessari bók hefur lífi og starfi
Hallgríms Péturssonar verið ger^
meiri og betri skil en áður. Henn>
mun því verða tekið með fögnuði a
liinum mörgu unnenduin þessa
ógleymanlega söngvara íslenzku þjúð
Sv. S.