Eimreiðin - 01.10.1947, Blaðsíða 65
BlMRBitHN sÓL OG SUMAR Á HÚNAFLÓASTRÖNDUM
289
í um 150 m. hæð yfir sjó. Vex hún þar í hrísþúfum innan um
stinnastör. Er ekki örgrannt um, að þær liafi blandað blóði þarna
í hjöllunum. Eru þær ögn áþekkar í útliti, en hrísastörin öllu
hærri og grannvaxnari, með rauðleitiim slíSrum. — Flóinn er all-
stór, með einkennilegum, gróðurlausum, hvítum flögum. Rann-
sakaði Bjöm Jóhannesson, jarðvegsfræðingur, sýnishorn af leirn-
tun, og reyndist þetta vera kísiljörð, lítt hæf fyrir gróður. En
utan flaganna er flóinn grösugur, vaxinn fífu og stör. 1 síkjum
nálægt ánni vaxa alurt, álftalaukur og smánykra, allt fremur
úigætar jurtir. 1 hlíðinni ofan við Svanshól er dálítið kjarr, allt
tnn í Goðdal. Vísaði Ingimundur okkur þar á krossjurt og skolla-
her. Reynihríslur sýndi hann okkur í Þverárgljúfri og víðar. Uppi
á fjallinu eru mýrablettir og tjarnir milli urðarása. Rjúpustör,
8ótstör, jöklasóley og fjallhæra vaxa þar víða. Keldustör fundum
við við tjörn eina í um 200 m. liæð. Eru víðast kragar af klófífu,
hrafnastör, liengistör og flóastör kringum tjarnirnar. 1 liálfdeigju
Vaxa litunarjafni og lyngjafni innan um mýrafinntmg, en skolla-
fingur í gjótuin. Skaflar lágu sumstaðar í lautum, þótt ekki sé
hátt yfir sjó.
Hinn 6. ágúst fylgdi Ligimundur okkur ríðandi imi í Goðdal.
Uoðdalur er stuttur, snotur dalur, gróðursæll liið neðra, en hlíðar
yíða grýttar. Falla fossandi smáár niður í botn hans. „Hann er
euis og útilegumannadalur í þjóðsögunum“, er haft eftir Ragnari
^sgeirssyni. En þeir dalir áttu jafnan að vera kostameiri en
hyggðalöndin. Vaxa þúsundblaðarós og skjaldburkni í brúskum
1 Urðunum við hlíðarrætumar. Skollakambur er einnig innarlega
1 dalnum. I Goðdal býr Jóhann Kristmundsson. Hefur hann og
8ynir hans mikinn áliuga fyrir gróðrinum; eiga þeir feðgar grasa-
8afn og hafa birt jurtaskrá í Náttúrufræðingnum. Eina nýja teg-
Und, stinnasef (j. Squarrosus), fundu þeir í fyrra. Vex það í þétt-
Urn’ dökkgrænum brúskum innan um firnung og mýrafinnung á
allstórri flöt ofan við mógrafir í dalbotninum. — I Goðdal er
uýtt liús og liitaveita. Em 60° heitar laugar rétt lijá bænum. Vex
þar og í túninu mikið af selgresi. Þar vaxa líka græðisúra og
Hllikerfill, kúmen og rauðsmári, sem haldizt liafa í túninu á
annan áratug. Þar voru rýgresin bæði, akurfax, skurfa, akurarfi
°g vafsúra. Jöklaklukka vex í fjallinu, skrautpuntur á Hvanna-
hjalla og krossjurt í kjarri. Vallhumall, liundasúra. livítsmári og
19