Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1947, Síða 40

Eimreiðin - 01.10.1947, Síða 40
264 GIRNDARAUGA ÁSVALBARÐA eimreiðin og sendu herskipið „Svetlana“ til Spitzbergen; hafði verið lagt fyrir foringjann að draga upp fána Rússlands hvarvetna þar, sem menjar sæjust um, að rússneskir veiðimenn hefðu haft bækistöð. Þegar lierskipið koin til Rússahafnar, á sunnanverðri Bjarnarey, og ætlaði að fara að draga upp fánann, hrakti Lerner, foringi þýzka leiðangursins, hann á burt þaðan. Rússinn lét nndan síga og sigldi til norðurodda Bjarnareyjar og setti þar upp töflu með áletruninni: „Rússnesk eign“. Urðu orðsendingar milli Þjóðverja og Rússa um þetta mál, en það féll niður, og hvorug þjóðin reyndi að helga sér Bjarnarey eftir það. Þetta sýndi eigi að síður, að eigi mátti dragast lengi að gera út um eignarréttinn yfir Spitzbergen og Bjarnarey. Norðmenn ótt- uðust, að eitthvert stórveldanna mundi lielga sér eyjarnar þá og þegar, án þess að spyrja Norðmenn, sem bæði liöfðu hagnaðar- legan og landfræðilegan rétt til eyjanna: samkvæmt síðari kenn* ingum um, að lieimskautasvæðin skuli teljast til þeirra landa, sem eiga strönd sunnan að þeim eða norðan, fellur Svalbarð undir Noreg, en ekki Rússland, því að lengdarstigin 10—25, sem Sval- barð liggur á milli, falla öll um Noreg. •— Norska stjórnin tók málið upp á ný árið 1907 og sendi stjómum Þjóðverja, Hollend- inga, Dana, Breta, Frakka, Svía, Rússa og Belga erindi, þar sem bent var á, hvílík vandræði gætu hlotizt af því, að engin lög eða réttur væri á Spitzbergen. Lögðu Norðmenn til, að ráðstefna skyld1 kvödd saman til að ræða málið. öll ríkin studdu þessa tillögn nema Belgía, sem kvaðst engra hagsmuna þurfa að gæta í sam- bandi við Spitzbergen. Norska stjórnin gerði nii yfirlit um málin, sem rædd skyldu, og sænska stjórnin lagði til, að þau lönd, sem einkum hefðu hagS' muna að gæta á Spitzbergen, skyldu gera ákveðnar tillögur 1 málunum, sem lagðar skyldu fyrir ráðstefnuna. Þetta var svo gert á fundi þessara þriggja ríkja, sem haldinn var í Kristjaníu 1910- Var gert uppkast í 77 greinum og sent hinum stjórnunum til álita, og að fengnum athugasemdum þeirra var svo nýtt uppkast gert 1912. Samkvæmt því skyldi Spitzbergen verða „no mans land , með jafnrétti fyrir allar þjóðir til að reka þar útveg og stunda vísindarannsóknir. Alþjóðleg nefnd, skipuð fulltrúum frá Noregi, Rússlandi og Svíþjóð, skyldi annast yfirstjórn eyjanna. Málum mátti skjóta til sérstaks yfirréttar. Skyldi formaður hans vera fra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.