Eimreiðin - 01.10.1947, Blaðsíða 60
284
SÓL OG SUMAR Á HÚNAFLÓASTRÖNDUM EIMREIÐIN
þessum slóðum. Yið ökum inn með Steingrímsfirði í björtu veðri.
Bæjarfell blasir við handan fjarðarins. Undir því sést húsaþyrp-
ingin á Drangsnesi og Grímsey þar fyrir framan. Steingrímsfjörð-
ur er langmestur fjörður á austanverðum Vestfjörðum. Er hann
um 24 km. á lengd og gengur til vesturs inn í hálendið. Stein-
grímsfjarðai-fjöllin eru fremur lág. Hallast klettar og jarðlög öll
talsvert niður að firðinum, líkt og allt liafi verið að sporðreisa6t
einhvern tíma í grárri forneskju. — 1 Hólmavík hópast krakk-
arnir að bílnum, eins og fullorðna fólkið sækir niður á liafnar-
garðinn í Reykjavík, þegar skip koma eða fara. Við Gröntved
(eða Jóhannes frá Grænuskógartungu, eins og liann útskýrði nafn
sitt og oft var nefndur nyrðra) héldum beint á gistihúsið, en þar
ræður ung stúlka ríkjum. Um kvöldið kom bátur frá Djúpuvík.
Varð þá húsfyllir og sunium komið fyrir úti um bæ. Heldur
kváðu gestirnir dauft á Djúpuvík og stopula atvinnu, vegna síldar-
leysis. Á Hólmavík biðu tómar tunnur og bryggjur, en þangað var
ekki komin nokkur branda. Síldin er dutlungafull. Hún vildi alU
ekki vestur á bóginn í sumar. Vonandi situr hún kyrr á skák sinni.
eins og Láfi, framvegis og sækir livorki of langt austur né vestur.
Grýtt er við Hólmavík. Rétt fyrir ofan eru gráir klettahryggir 1
röðum. Snúa þeir frá SV.—NA. og eru gróðurlausir eða suniir
vaxnir grámosa og skófum. Milli þeirra eru lautir og geilar vaxnar
firnungi (nardus) og grasi. Lágar, skriðular birkiliríslur sjást a
víð og dreif í lautarbörmunum — innanum grjótið og klettana,
rétt ofan við kaupstaðinn. Þar er líka ákaflega grösugur, girtur
reitur, sem eitthvert félag á. Engin hrísla sést þar, en undafíflar
ná manni í mitti. Konur á Hólmavík liafa í hyggju að koma upp
trjáreit og blómagarði við bæinn; sennilega rétt ofan við benziu-
geymana. Er þar laust við særok og klettaliæð til skjóls og prýðis-
Birki og víðir geta eflaust þrifist þar vel, einnig ribs, en ekki
mætti vænta verulegra berja af því. 1 kaupstaðnum sáum
regnfang, venusvagn, úlfabaunir (lúpínur), kornblóm, stjúpur og
fiðrildablóm (nemesíur) í góðum vexti, þar sem hlé er fyrir s08
roki. Geta mörg harðgerð skrautblóm sennilega dafnað þar. Garð
rækt er ennþá lítil á Hólmavík og annarsstaðar við Steingnui8
fjörð. Samt voru töluverðir kartöflugarðar innan við bæinn. Er
kartöfluræktin sennilega misfellasöm, en samt munu mörg heinu
geta liaft nóg handa sér, ef ræktuð eru fljótsprottin afbiigð1.