Eimreiðin - 01.10.1947, Qupperneq 72
296
SÓL OG SUMAR Á HÚNAFLÓASTRÖNDUM eimrbiðiN
blíða. Vi3 böfSum getað safnað jurtum og gert athuganir alla
daga, varla komið í kápu eða sett upp höfuðfat. Allsstaðar mætt-
um við gestrisni og greiðasemi. Gröntved undraðist mjög áhuga
fólksins fyrir gróðrinum. „1 Danmörku fara bændur ekki út að
athuga blóm með grasafræðingum. Þið líkist meira Svíum í þeim
efnum“, sagði hann, „síðan Linné vakti þá“.
Byggðir Húnaflóastranda eru nú á tímamótum. Byggðin dregst
sumstaðar saman. Fólk flytur í þorpin eða alla leið til höfuð-
staðarins. Við höfðum séð einbúa á stórri jörð og prestinn standa
einan við orfið. En við sáum líka nýbýli, nýrækt, hitaveitu og
hafnarframkvæmdir.
Daginn, sem við héldum suður, var enn sama góðviðrið nyrðra.
En í Borgarfirði kom suddinn og súldin á móti okkur. Veðrið
syðra hafði allan tímann verið eins og lýst er í vísunni, sem lögð
var í munn veðurspámönnum útvarpsins, í för skógræktarmanna
í sumar: .
Petta er leidur allra atta fjandi —
útsynningur, gleið'ur — tvistígandi,
austan bræla — norðan náhraglandi.
Nú er varla hundi út sigandi!
Verðlaunaspurningar, IV. flokkur.
Á bls. 313 eru hirt úrslit um svörin við verðlaunaspurningum síðasta
heftis. Hér koina enn þrjár nýjar verðlaunaspurningar:
1. I hvaða kvæði og eftir hvern eru þessar Ijóðlínur:
Andinn getur hafizt hátt,
þó höfu’ð lotið verði.
2. í hvaða sögu og eftir livern eru þessar sctningar:
Hugir mannanna eru eins og bikarar, sem lífið fyllir af óró. Þeir eru í hja-
kátlega mismunandi stœrðum. Sumir taka mikið, sumir lítið, en þegar flýt,ir
út af, hafa allir tekið nóg.
3. í livaða ritgerð og eftir hvern er þessi kafli:
— Bókmennta-arfleifð þjóðarinnar er enginn dúnsvœfill, sem hún getur lagí1
á til þess að dreyma um liðna daga. Vcr megum búast svo við, að enn sé óslit‘n
barátta framundan. Vér höfum að vísu rekið af höndum oss ýmis áhlaup. E’1
sigurlaun lífsins eru aldrei hvíld, heldur kostur á að halda vörninni ájrani.
Eins og áður verða þrenn verðlaun veitt fyrir rétt svör, ein fyrir hverja
spurningu. Hlutkesti verður varpað uin, liver liljóta skuli verðlaunin, ef fleirl
en eitt rétt svar koma við spurningu. Hver verðlaun eru kr. 25,00 eða ars-
áskrift að Eimreiðinni. Úrslit verða birt i næsta liefti. Svörin, ásamt nafni og
heimilisfangi svarenda, sendist fyrir 1. marz 1948 til Eiinreiðarinnar, Póstliólf
322, Rvík.