Eimreiðin - 01.10.1947, Page 74
298
SALAZAR
EIMREIÐIN
vera færir um að virða sameiginlegar réttarreglur og demókratísk
stjómarlög. Á meðan hætta sé á, að æðsta vald landsins lendi
í hers höndum, hafi hann t. d. ekki séð ástæðu til í fyrstu að
sækja fyrir Portúgal um inntöku í UNO (Sameinuðu þjóðirnar),
enda þótt ýms önnur smáríki, eins og t. d. Líbería, hafi talið sig
hæf til þess. Nú hefur þó Portúgal sótt um upptöku.
Portúgal hefur um langt skeið verið í mjög nánu sambandi við
Breta og notið sérstakrar verndar þeirra. Gegn ráðum þeirra settu
Portúgalar þó konung sinn af árið 1910 og stofnuðu lýðveldi undir
„frönsku lýðræði“, sem þá var enn í tízku, þótt það liafi síðan
verið dæmt óhæft, með því að það hefur á stuttum tíma eyðilagt
fjárhag og stjórnlegt siðferði allra ríkja, er því fylgdu. Samkvæmt
frönsku lýðræði er æðsta vald ríkisins í höndum andstæðra hags-
munaflokka, en ríkisheildin óvirk, valdalaus og varnarlaus. —
Þetta fyrirkomulag sigldi auðvitað fjárliag portúgalska lýðveld-
isins í strand á skömmum tíma og gerði þingið óstarfhæft, svo að
ríkið missti allt traust, bæði inn á við og út á við. Lánardrottnar
höfðu þá heimtað, að settur yrði fjármálaráðherra, sem eittlivert
skynbragð bæri á fjármál. Og var þá dr. Salazar fengið þetta
embætti árið 1926, því að hann var þá prófessor í hagfræði. En
þegar flokkarnir vildu ráða og fá að reka hrossakaupabrask eitt
í þinginu eftir sem áður, tók Salazar hatt sinn og kvaddi. En
þar sem enginn þorði nú lengur að trúa Portúgölum fyrir tu-
skildingsvirði, urðu þeir að grátbæna Salazar um að taka sætx
sitt aftur. Lét liann loks til leiðast með þeim skilyrðum, að liann
setti þá landinu nýja stjórnarskrá, sem veitti honum einræðilegt
neyðarumboð um óákveðinn tíma. — Hag landsins og álit reisti
Salazar svo við á fáum árum. En hann — eða þó kannske öllu
heldur lánardrottnarnir — hafa enn í dag ekki þorað að sleppa
taumhaldinu, af ótta við, að flokkarnir næðu þá aftur tökum, ætu
ríkið út á húsganginn og spilltu enn á ný viðskiptalegu trausti
landsins.
Brezkt heimildarblað að þessum línum segir Salazar vera 64
ára. En tveimur öðrum heimildum ber saman um, að hann se
fæddur árið 1889. Eftir því ætti hann að hugsa sér að sitja enn
að ríkjmn um 12 ára skeið.