Eimreiðin - 01.10.1952, Page 45
EIMREIÐIN
ISLANDSVINURINN HANS HYLEN
261
ennfremur í mörg ár formaður Ungmennafélags Rogalands og
áratugum saman öndvegishöldur í Góðtemplarareglunni á þeim
slóðum, að öðrum félagsstörfum ótöldum. Bera þessi störf hans
vitni miklum áhuga hans á félagsmálum og brennandi ættjarðar-
°g hugsjónaást hans.
n.
En þrátt fyrir annasöm embættisstörf og víðtæka þátttöku í
félagsmálum, hefur Hans Hylen unnizt tími til mikilla ritstarfa,
einkum í ljóðagerð. Hann hefur gefið út eftirfarandi ljóðasöfn,
Þýdd og frumsamin. Millom frendar og framande, ljóðaþýðingar
úr ýmsum málum, 1929; Solglytt, prólogar, 1930; Snjoklokka,
frumort kvæði og þýdd, 1936; Det syng frá Bogdemyr, einnig
frumort og þýdd kvæði, 1939; Millom frendar, ljóðaþýðingar úr
íslenzku, 1944; og Ferdafuglar, úrval þýddra og frumortra kvæða,
1945. Nokkurra endurtekninga kennir að vísu í þessum ljóðasöfn-
Uru, í þeim skilningi, að sum kvæðin, frumort og þýdd, eru þar
endurprentuð, enda má skoða tvö hin síðastnefndu söfn sem heild-
arsöfn, einkum hvað þýðingarnar úr íslenzku snertir.
Hans Hylen er ljóðskáld gott, enda hafa frumort kvæði hans
hlotið vinsamlega dóma. Honum býr í brjósti sterk ljóðræn æð,
°g sjást þess ekki sízt merki í innilegum og þýðum persónulegum
hvæðum hans og náttúrulýsingum.
Jafn mikill ættjarðarvinur og Hylen er og tengdur átthögum
sínum traustum böndum, fer það að vonum, að hann yrkir fögui
kvæði og hreimmikil um Noreg og Rogaland; í þeim kvæðum hans
eru hugsjónaást hans og framtíðartrú einnig undiraldan, og má
1113 sama segja um kvæði hans um öndvegisskáldin Bjornstjerne
Ejornson og Arne Garborg og skáldklerkinn og skörunginn Anders
Hovden, hinn kunna íslandsvin. í þessum kvæðum, og annars
staðar, lýsir það sér einnig vel, hversu mikið vald Hylen hefur á
máli og stíl; nýnorskan, hún er hans mál, leikur í höndum hans,
myndauðug, mjúk og sterk. Og þetta vald hans á norsku máli,
samfara óvenjulega mikilli tungumálaþekkingu hans, hefur gert
hann eins snjallan þýðanda og raun ber vitni, eins og dr. phil.
Eirik Vandvik leggur réttilega áherzlu á í hinum hlýju formáls-
°rðum sínum að Ferdafuglar, úrvalinu úr frumortum og þýddum
^væðum Hylens, að hinum íslenzku frátöldum, sem birtar eru
elnar sér í safninu Millom frendar.
Arnljótur Jónsson víkur að því í grein sinni, að sagt sé, að
Hyien hafi orðið fyrir áhrifum af íslenzkum kveðskap og ljóðlist,