Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1957, Page 17

Eimreiðin - 01.01.1957, Page 17
Janúar—marz 1957 EIMREIÐIN LXIII. ár 1. hefti Við hi óSveáiswi eítir Guðmund Gíslason Hagalín. Rithöfundasjóður rikisútvarpsins. I mörgum menningarlöndum heims eru til sjóðir, sem hafa á hendi það hlutverk að verðlauna eða styðja á einn eða annan hátt skáld eða aðra listamenn. Starfsvettvangur sumra þessara sjóða er svo víðáttumikill, að þar gætir hvorki þjóð- ernis né landamæra. En þorri slíkra sjóða hefur aðeins það markmið að styðja að vexti og viðgangi fagurra lista með einni þjóð. Flestir eru þeir þannig til orðnir, að auðugir menn, sem ekki hafa síður haft áhuga fyrir andlegum verð- mætum en peningum, hafa gefið ýmist öll efni sín eða nokk- urn hluta þeirra til sjóðstofnunar. Hafa þessir auðmenn slegið á þennan hátt að minnsta kosti þrjár flugur í einu höggi: Glatt góða listamenn og létt þeim baráttu þeirra, ^uðgað þjóð sína að listaverkum og séð minningu sinni far- horða á mjög lofsamlegan og öruggan hátt. Islenzkir efna- og auðmenn hafa um sitthvað tekið sér erlenda auðkýfinga til fyrirmyndar. Þeir hafa reist sér og sín- tim ríkmannleg íbúðarhús í fallegum bæjarhverfum, komið sér upp myndarlegum sumarbústöðum í fögru umhverfi -- sumir fleiri en einum —, ferðazt einir eða með fjölskyldu sina um framandi lönd og verið margir hverjir mikillátir um dvalarstaði, gistihús og risnu, en þeir hafa engir fundið bjá sér hvöt til að fara að dæmi erlendra auðmanna um sjóð- stofnanir til aukins gengis menningu og listum með þjóð smni. Sjóðir til eflingar slíkum málum hafa til skamms tíma ekki verið til hér, nema hvað danskur, — ég segi og skrifa danskur rithöfundur, Kelvin Lindemann, fann upp á því.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.