Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1957, Page 46

Eimreiðin - 01.01.1957, Page 46
30 EIMREIÐIN launa fyrir sérstök listafrek eða viðurkenningar til handa listamönnum, er unnið hafa merkilegt starf, sem megi verða æskilegt fordæmi. Skuli einnig miðað við það, að verðlaun þessi eða viðurkenning sé ungum listamönnum eggjun tii dáða, og hún sé svo ríflega í té látin, að um muni. Út af tillögum nefndarinnar í heild skal það að lokum fram tekið, að gott samkomulag liefur ríkt urn störf og niður- stöður. Nefndin gerði sér far um að samræma ýmis sjónarmið og hafa það, sem kailazt gæti meðalvegur, en þó orðið fram- tíðargrundvöllur þessara mála. Vonar nefndin, að tillögur hennar komist í meginatriðum í framkvæmd í trausti þess, að þar með reynist skipan listamannalauna öruggari og sann- gjarnari en verið hefur og ísienzkri list til eflingar og nýrra sigra og þjóðinni til vegsauka. Skýringar við einstakar grcinar frumvarpsins. Um 1. gr. Nefndin valdi orðið listamannalaun sem heildarheiti þeirra launa, sem gert er ráð fyrir að þjóðin veiti samkvæmt frum- varpi þessu, enda var þetta heiti notað í skipunarbréfi nefnd- arinnar. Þá valdi nefndin orðið listráð, en ekki listarráð, sem áður hefur verið notað í þeirri merkingu, sem þarna á við. Um tölu launaflokka, upphæð launa og ákveðin hlutföll milli lieildarlauna í 2. og 3. flokki réð það sjónarmið, að óbrotið form, en sem fastast, hentaði bezt, og vel verði gert við þá listamenn, sem laun Iiljóta hverju sinni. Þessi skipan hefur í för með sér allmikla fækkun þeirra, sem hljóta árlega listamannalaun, en með þessu móti er unnt að tryggja, að meira muni en áður um listamannalaunin, einnig fyrir þá, sem þau hreppa annað eða þriðja hvert ár. Það virðist óumdeilanlegt, að þeir listamenn, sem njóta í hæsta flokki fastra ævilauna, eigi að hljóta, að fenginni slíkri viðurkenningu, aðstöðu til að búa við sæmilegt fjárhagslegt öryggi, og liggur sú skoðun til grundvallar tillögu nefndar- innar um upphæðina í 1. flokki. Var hún og ákvörðuð með hliðsjón af þeim lieiðurslaunum. sem Alþingi sjálft hefur sam- þykkt á fjárlögum til tveggja rithöfunda. Vegna þess, að allir viðurkenndir listamenn þjóðarinnar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.